Börn og menning
Tímaritið Börn og menning kemur út tvisvar á ári, að vori og að hausti. Félagsmenn Íslandsdeildar Ibby fá blaðið sent heim en það er einnig selt í lausasölu í bókaverslun Máls og menningar að Laugavegi 18. Ef óskað er eftir eldri eintökum, vinsaml. hafið samband við ritstjóra, Þórdísi Gísladóttur eða formann, Guðlaugu Richter. Ritnefnd skipa auk Þórdísar Brynja Baldursdóttir og Oddný S. Jónsdóttir.
Tilgangur tímaritsins er að auka veg barnamenningar og barnabókmennta á Íslandi. Því er ætlað að fjalla um það helsta sem er að gerast á sviði barnamenningar og kynna nýjar og eldri bókmenntir. Þar er m.a. að finna fræðilega umfjöllun um barnabækur, viðtöl við barnabókahöfunda og aðra sem láta sig menningu barna varða. Þá er fjallað um leikrit, kvikmyndir og ýmsar uppákomur fyrir börn. Sem málgagn IBBY-samtakanna er því einnig ætlað að kynna það sem er á döfinni hjá IBBY bæði innanlands og utan.
Ef þú hefur áhuga á að gerast félagsmaður í Íslandsdeild IBBY eða áskrifandi að blaðinu, vinsaml. hafðu samband við Þorbjörgu Karlsdóttur eða Guðlaugu Richter, formann félagsins.
Smelltu á kápur hér fyrir neðan til að skoða síðustu árganga Barna og menningar:
|