BÓKAÚTGÁFA
IBBY á Íslandi hefur í samvinnu við Mál og menningu(síðar EDDU) staðið að útgáfu á þremur smásagnasöfnum, Ormagulli, Auga Óðins og Heilli brú.
Ormagull
Árið 1994 stóð félagið Börn og bækur - Íslandsdeild IBBY fyrirútgáfu smásagnasafnsins Ormagull í samvinnu við bókaforlagið Mál og menningu í tilefni af ári fjölskyldunnar og lýðveldisafmælinu. Í bókinni voru 14 smásögur eftir þekkta íslenska höfunda sem skrifuðu um efni er tengdist íslenskum þjóðsögum. Henni var afar vel tekið og hluti af sögunum var nýlega valinn til birtingar í smásagnasafni sem gefið var út í Finnlandi á sl. ári.
Sögur og höfundar (ókomnar allar upplýsingar):
Ormagull eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson
Hlemmur eftir Öddu Steinu Björnsdóttur
Sjö á landi, sjö í sjó eftir Iðunni Steinsdóttur.
Gullykillinn eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur

AUGA ÓÐINS
Í ljósi þessarar góðu reynslu var augunum beint að norrænni goðafræði en Íslandsdeild IBBY taldi að meira efni vantaði á íslensku til þess að íslensk börn fengi notið þessa menningararfs okkar. Var ráðist í útgáfu smásagnasafns sem nefnist AUGA ÓÐINS í samvinnu við bókaútgáfuna Eddu.
Bókin var prentuð í 1.500 eintökum til að byrja með, og dreift í bókaverslanir um dreifingarkerfi Máls og menningar.
Ritnefnd smásagnasafnsins var þannig skipuð:
Anna Heiða Pálsdóttir, doktor í barnabókmenntum
Iðunn Steinsdóttir, rithöfundur
Sigþrúður Gunnarsdóttir, ritstjóri barnabóka hjá Máli og menningu
Tíu myndlistarmenn voru fengnir til að myndlýsa sögurnar í Auga Óðins.

HEIL BRÚ
Í maí 2006 kom út goðsagnabókin Heil brú en hún var unnin með þeim óvenjulega hætti að fyrst voru myndirnar teiknaðar en sagan skrifuð á eftir. Myndlistarmenn völdu sér efni úr goðafræðinni og teiknuðu út frá því. Síðan fengu þeir rithöfunda í lið með sér til að ljúka verkinu. Bókin er gefin út í samvinnu IBBY á Íslandi og Eddu útgáfu.
Sögurnar eru níu talsins og myndlistarmenn og höfundar eru:
Heil brú ( Nína Björk Bjarkadóttir og Gerður Kristný)
2093 ( Áslaug Jónsdóttir og Andri Snær Magnason)
Blúbb! (Halldór Baldursson og Sjón)
Það kallast ögurstund (Guðrún Hannesdóttir og Vilborg Dagbjartsdóttir)
Mistilteinn (Ingólfur Örn Björgvinsson og Embla Ýr Bárudóttir)
Stanleyhamarsheimt (Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn)
Jörmun Gunnur (Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Úlfhildur Dagsdóttir)
Leyniþjónusta hrafnanna og hænurnar þrjár (Halla Sólveig Þorgeirsdóttir og Þórunn Valdimarsdóttir)
Sögurnar (Þórarinn Leifsson og Auður J ónsdóttir)
Bókin er 159 bls. að lengd og í formi pappírskilju.
|