|
Sigrún Eldjárn
Sigrún Eldjárn er fædd 3. maí 1954. Hún hefur ritað og myndskreytt á þriðja tug barnbóka en vinnur auk ritstarfa við olíumálverk, grafík og teikningu. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1974 og prófi frá Myndlistar- og handíðaskóla Íslands árið 1977.
>Lesa meira um Sigrúnu á síðu Eddu bókaútgáfu |
|

Á myndinni eru t.f.v.: Harpa Þórsdóttir sem tók við Vorvindum f.h. Nínu
Bjarkar Bjarkadóttur, Sigrún Eldjárn og Sigurður Skúlason
sem tók við Vorvindum f.h. Bernds Ogrodnik.
23. maí 2006
Þrennar viðurkenningar veittar
Allt frá árinu 1987 hefur IBBY á Íslandi (áður Íslandsdeild IBBY) veitt einstaklingum og stofnunum viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar á Íslandi. Fimmtíu aðilar hafa hlotið þessar viðurkenningar. Í dag voru viðurkenningarnar veittar og eftirfarandi hlutu þær:
Sigrúnu Eldjárn sem mynd- og rithöfundur. Í allt hafa komið út 34 bækur eftir hana. Sigrún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir ritstörf sín en einnig hefur hún verið tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna og H.C. Andersen verðlaunanna. Bækur Sigrúnar eru mjög fjölbreyttar, gerast bæði hér á jörð og í geimnum, í nútíð, framtíð og fortíð, fjalla jafnt um gamla og unga en fyrst og fremst eru þær altaf ævintýralegar og fullar af húmor og væntumþykju fyrir viðfangsefninu.
Bernd Ogrodnik fyrir starf sitt við leikbrúður. Bernd hefur verið mjög afkastamikill í leiksýningum á Íslandi að undanförnu og gerði meðal annars hinar fjölmörgu brúður sem komu fram í sýningunni Klaufar og kóngsdætur en hönnun þeirra og stjórnun var alfarið í höndum Bernds. Sýningin hlaut m.a. leiklistarverðlaun Íslands, Grímuna, sem barnaleiksýning ársins 2005. Bernd býr til allar sínar brúður sjálfur og er það oft langt og flókið ferli. Bernd hefur heimsótt flesta leikskóla á Íslandi með leikbrúðusýningar en með því starfi telur hann að börnin fái að kynnast listinni nógu snemma og búi að því alla ævi.
Björk Bjarkadóttur fyrir ritstörf í þágu barna. Björk, sem er fædd árið 1971 er barnabókahöfundur og grafískur hönnuður en hún hefur skrifað 5 myndabækur fyrir yngstu börnin, m.a. Leyndarmálið hennar ömmu, en fyrir þá bók hlaut hún Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin 2003. Björk býr í Osló og vinnur við ritun, myndskreytingar og hönnun bóka en hún fær margar hugmyndir að efni barnabóka hjá börnum sínum. Í bókum Bjarkar eru jákvæð skilaboð til barna og myndirnar eru litskrúðugar og fyndnar.

|