|


Á myndinni eru t.f.v.: Erla Kristín Jónasdóttir, sem tók við Vorvindum f.h.
Borgarbókasafns Reykjavíkur,
Þorgerður Jörundsdóttir og Örnólfur Thorlacius.
13. maí 2007
Þrennar viðurkenningar veittar
Allt frá árinu 1987 hefur IBBY á Íslandi (áður Íslandsdeild IBBY) veitt einstaklingum og stofnunum viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar á Íslandi. Fimmtíu aðilar hafa hlotið þessar viðurkenningar. Í dag voru viðurkenningarnar veittar og eftirfarandi hlutu þær:
Borgarbókasafn Reykjavíkur. Safnið hefur um árabil sinnt því hlutverki af kostgæfni að glæða áhuga barna og unglinga á bóklestri. Strax í leikskólum er þeim boðið í sögustundir og kynningar á söfnunum. Einnig eru Bókakoffort lánuð út í leikskólana og má hver skóli hafa koffortið tvo mánuði í senn. Börn og foreldrar fá bækur lánaðar heim úr þeim og er þetta gert til að bæta aðgengi heimilanna að bókum. Svipað er á döfinni í grunnskólum og nýlega voru Bókakistur safnanna
opnaðar í Foldaskóla, en þær hafa að geyma lesefni sem er ætlað unglingum og eru nú komnar í alla skóla í Grafarvogi og Grafarholti. Nemendur fá bækur úr kistunum lánaðar til að lesa í skólanum og mánaðarlega er skipt um efni. Sögustundir hafa lengi verið í boði á bókasöfnunum og eru enn. Á hverjum sunnudegi á veturna eru líka barnadagar í Aðalsafni þar sem boðið er upp á ýmislegt til skemmtunar. Á sumrin eru starfræktar ritsmiðjur og einnig er safnkynning fyrir fjórðu bekki grunnskóla árlega. Allt er þetta starf ómetanlegur þáttur í aðgera uppvaxandi kynslóð læsa og vekja hana til vitundar um þá gleði og fróðleik sem bækur veita okkur.
Árlega veitir IBBY á Íslandi Vorvinda til nýliða sem hefur vakið athygli fyrir sína fyrstu bók eða fyrstu bækur og lofar góðu um framhaldið. Þorgerður Jörundsdóttir hlaut Vorvindana í þessum flokki. Þorgerður hefur tekið þátt í mörgum listsýningum á Íslandi og erlendis og hún hefur þýtt fimm bækur en hún hlaut verðlaun Fræðsluráðs árið 1998 fyrir þýðingu sína á bókinni Flóttinn eftir Terry Pratchett. Þverúlfs saga grimma kom út árið 2005 en hún geymir ævintýri drengs sem flýgur á eldflaug sinni um geiminn. Þorgerður vann til 1. verðlauna í samkeppni Bókaútgáfunnar Æskunnar fyrir þá bók. Í fyrra kom síðan út bókin Mitt er betra en þitt. Nú teiknar hún myndir við glettinn texta um tvo stráka sem metast um feður sína og dreka sem verður hrikalega ægilegur. Við vonum að Þorgerður haldi áfram að skrifa og myndlýsa vandaðar barnabækur og óskum henni alls hins besta.
Örnólfur Thorlacius hlaut Vorvinda fyrir vandaðar þýðingar á fræðibókum fyrir börn. Örnólfur er íslensku þjóðinni vel kunnugur, sérstaklega vegna þátta hans á RÚV sem nefndust „Nýjasta tækni og vísindi,“ en þeir nutu mikilla vinsælda og vöktu áhuga almennings á vísindum. Hann hefur í áratugi kveikt áhuga barna á undraheimum vísindanna, erfðafræði, eðlisfræði og ýmsu öðru sem opnar augu þeirra fyrir töfrum náttúrunnar. Bækur hans, Bókin um vatnið, Bókin um hjólið og Bókin um hraðann njóta mikilla vinsælda hjá börnum og Tilraunabók barnanna og Galdrabók barnanna hafa hvatt þau til að líta í kringum sig og sjá ýmsa hluti í tilverunni. Auk þýðinga sinna hefur Örnólfur haft umsjón með útgáfu bókaflokksins Skoðum náttúruna, en hann geymir vandaðar og fallegar bækur um forvitnileg fyrirbæri í dýraríkinu. Með þýðingum sínum og aðkomu að útgáfu fræðibóka fyrir börn hefur Örnólfur lagt fram dýrmætan sjóð til barnamenningar.
Sjá lista yfir alla handhafa Vorvinda hér.

Myndin sýnir hluta af gestunum sem mættu í Gunnarshús til að samfagna verðlauna-
höfum og njóta góðra veitinga.
Fríður hópur mætti fyrir hönd Borgarbókasafns, en þær eru, t.f.v.: Anna Vilborg Dyrset, Sigrún
Jóna Kristjánsdóttir, Þorbjörg Karlsdóttir, Sigrún Ása Sigmarsdóttir og Erla Kristín
Jónasdóttir. Þá kemur Þorgerður Jörundsdóttir og lengst til hægri er Örnólfur Thorlacius.
|