|
FRÉTTIR 2005 |
Yfirlit:
|
| |
|
Í SAFNAHEIMI
RÁÐSTEFNA Á BIFRÖST Í SUMAR
„Hvers virði er hinn þjóðlegi arfur fyrir börnin okkar?"
Miðvikudag 29. júní til sunnudags 3. júlí 2005
|

|
Ráðstefna á Bifröst í sumar: Í sagnaheimi
Skólasafnskennarar standa fyrir mjög svo áhugaverðri ráðstefnu á Bifröst í sumar, um mánaðarmótin júní og júli (29. júní –3. júlí 2005 ). Yfirskriftin er: „Hvers virði er hinn þjóðlegi arfur fyrir börnin okkar?“ Viðfangsefni ráðstefnunnar er að skoða hvernig við nýtum þann gnægtarbrunn sem norrænn menningararfur er og hvernig hann getur orðið aflvaki nútíma menningar í skólum.
Viðfangsefni ráðstefnunnar er að skoða hvernig við nýtum þann gnægtarbrunn sem norrænn menningararfur er og hvernig hann getur orðið aflvaki nútíma menningar í skólum. Á ráðstefnunni verður fjallað um:
- norrænar fornbókmenntir, goðsögur, þjóðsögur og ævintýri, og hvernig þær nýtast í skólahaldi, hvaða áhrif þær hafa á börn, hvernig þeim er komið á framfæri, og
- stöðu og hlutverk skólasafna sem miðstöð þekkingar í skólum
Fyrirlesarar eru:
Frá Íslandi : Kristín Unnsteinsdóttir, Sölvi Sveinsson, Torfi Hjartarson, Þorvaldur Þorsteinsson, Þuríður Jóhannsdóttir, Þórarinn Eldjárn, Brynhildur Þórarinsdóttir og Jóhanna Karlsdóttir.
Frá Danmörku : Bent Rasmussen, Jens Kostrup, Gert Larsen.
Frá Færeyjum : Regin Debess.
Frá Grænlandi : Laannguaq Lynge.
Félag skólasafnskennara sér um framkvæmd ráðstefnunnar, en félagið er aðili að norrænum samtökum skólasafnskennara og hefur staðið að ráðstefnum sem NSF – Nordisk skolebiblotekar-forening hefur haldið, þar af í tvígang hér á landi, árið 1982 og 1993.
Mögulegt verður að sækja einstaka fyrirlestra eða dvelja einn dag. Verð miðast þá við það.
Verð fyrir alla ráðstefnuna er enn nokkuð hátt, en von er til að styrkir fáist og þá mun uppgefið verð lækka.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef skólasafnskennara.
|
| |
25 . apríl 2005
Fundur um barnamenningu
Eins og mörgum er kunnugt hefur dreifður hópur verið að vinna að því um nokkurn tíma að sjá Barnamenningarstofnun verða til. Hægt er að skoða málið nánar hér. En við viljum minna á aðalfund undirbúnings-samtakanna sem verður haldinn í Norræna húsinu miðvikudaginn 27. apríl kl. 17:00. Þeir sem áhuga hafa á einhverjum sviðum barnamenningar á Íslandi, hvort sem það er leiklist, myndlist, bókmenntir, tónlist, fjölmiðlar eða hvað sem er, eru velkomnir og vonandi mæta sem flestir. Vert er að taka fram að Guðrún Þórsdóttir hefur tekið saman punkta um barnamenningarfund sem haldinn var í Gerðubergi þann 5. mars 2005. Kærar þakkir til hennar.
Smellið hér til að skoða punkta Guðrúnar.
25 . apríl 2005
Aðalfundarboð
Aðalfundur IBBY á Íslandi verður haldinn að Lækjarbrekku mánudaginn 23. maí nk. Fundarstjóri verður Iðunn Steinsdóttir og fundarritari Sigríður Matthíasdóttir.
DAGSKRÁ:
Skýrsla formanns
Reikningar lagðir fram
Árgjald ákveðið
Stjórnarkjör
Önnur mál
Allir félagar IBBY á Íslandi eru hvattir til að mæta, taka þátt í umræðum og þiggja kaffiveitingar.

23. apríl 2005
Vorvinda-viðurkenningar
Laugardaginn 7. maí nk. verða hinar árlegu Vorvinda-viðurkenningar IBBY á Íslandi afhentar í Norræna húsinu við hátíðlega athöfn. Við hvetjum sem flesta til að mæta, samfagna hinum ágætu Vorvinda-höfum og taka með okkur lagið, „Vorvindar glaðir.“ Athöfnin hefst kl. 14:00.
29.03.2005
Ráðstefna á Bifröst í sumar: Í sagnaheimi
Skólasafnskennarar standa fyrir mjög svo áhugaverðri ráðstefnu á Bifröst í sumar, um mánaðarmótin júní og júli (29. júní –3. júlí 2005 ). Yfirskriftin er: „Hvers virði er hinn þjóðlegi arfur fyrir börnin okkar?“ Viðfangsefni ráðstefnunnar er að skoða hvernig við nýtum þann gnægtarbrunn sem norrænn menningararfur er og hvernig hann getur orðið aflvaki nútíma menningar í skólum.
> Lesa meira
29.03.2005
Grimms-verðlaunin til Mariu Nikolajeva
Rússnesk-ættaði Íslandsvinurinn Maria Nikolajeva hlaut nýlega alþjóðlegu Grimms-bræðra-verðlaunin en þau eru samtals að upphæð 1 milljón japanskra yena. Þetta er í 10 skipti sem verðlaunin eru afhent en sjóðurinn var stofnaður 1986 á vegum „International Institute for Children' s Literature“ í Osaka og „the Kinran-kai Foundation“ til þess að styrkja rannsóknir á barnabókmenntum.
Lesa meira >>
27.03.2005
Hvernig væri að bregða sér til KÚBU?
Ráðstefna verður haldin dagana 24-29 október 2004 í Havana á Kúbu. Þar verða í boði margir fyrirletrar og áhugaverðar málstofur.
Lesa meira >>
18.02.2005
Breska IBBY-ráðstefnan
Ákveðið hefur verð að breska IBBY-ráðstefnan verði haldin 12. nóvember 2005 í Roehampton-háskólanum (rétt utan við London. Yfirskrift ráðstefnunnar er „NO CHILD IS AN ISLAND: THE CASE FOR CHILDREN'S BOOKS IN TRANSLATION.“ IBBY hefur ávallt haft áhuga á því hvernig bækur sem skrifaðar eru fyrir ákveðinn menningarhóp koma fyrir augu barna af öðrum uppruna. Nú á að skoða hvernig þýddar bækur geti brúað mil milli menningarheima. Á ráðstefnunni munu þekktir rithöfundar og þýðendur flytja erindi en einnig verður boiði upp á hópavinnu (workshops) sem tæki um 25 mínútur og fengist við eitthvað af eftirtöldu:
- Þýðingar á og úr tungumálum minnihlutahópa
- Sambandið milli menningar og þýðinga
- Þýðingar á og úr „amerískri“ ensku
- Þýðingar á fræðibókum
- Skoðanir útgefenda gagnvart þýddum bókum
- Sambandið milli höfunda og þýðenda þeirra
- Hlutverk umboðsmanns hvað þýðingar varðar
Sérstaklega er sóst eftir framlagi frá fræðimönnum sem hafa áhuga á einhverju af þessum efnum. Allt áhugafólk er velkomið á ráðstefnuna.
Fyrra Bókakaffið 2005
Þann 24. febrúar sl. var haldið fyrra Bókakaffi ársins 2005 á Kaffi Reykjavík. Við þökkum Þorbirni Broddasyni og Elísabeti Arnardóttur fyrir einstaklega áhugaverða fyrirlestra - og Kaffi Reykjavík fyrir aðstöðuna
Lesa meira >>
GRIMMS-VERÐLAUNIN 2005
ÍSLANDSVINURINN MARIA NIKOLAJEVA HLÝTUR HIN VIRTU VERÐLAUN
|
Rússneskættaði „Íslandsvinurinn“ Maria Nikolajeva hlaut nýlega alþjóðlegu Grimms-bræðra-verðlaunin en þau nema samtals einni milljón japanskra yena.
Þetta er í 10 skipti sem verðlaunin eru afhent en sjóðurinn var stofnaður 1986 á vegum „International Institute for Children' s Literature“ í Osaka og „the Kinran-kai Foundation“ til þess að styrkja rannsóknir á barnabókmenntum. Þau eru eins konar viðurkenning til fólks sem stendur í öndvegi rannsókna á barnabókum eða myndabókum og hefur haft áhrif á þær.
Fram að þessu hafa eftirtaldir hlotið verðlaunin:
- Dr. Klaus Doderer (Germany) in 1987
- Dr. Gote Klingberg (Germany) in 1989
- Dr. James Fraser (U.S.A.) in 1991
- Mr. Shin Torigoe (Japan) in 1993
- Dr. Denise Escarpit (France) in 1995
- Dr. Theodor Bruggemann (Germany) in 1997
- Dr. Jack Zipes (U.S.A.) in 1999
- Dr. Jean Perrot (France) in 2001
- Professor Peter Hunt (U.K.) in 2003.
Þar sem Maria Nikolajeva hefur margoft komið hingað til lands og er mikill aðdáandi íslenskra barnabókmennta gleðjumst við mikið yfir þessum heiðri. Maria kennir barnabókmenntir við Háskólann í Stokkhólmi og er gestakennari í ótöldum háskólum víða um heim. Hún hefur skrifað margar bækur um barnabókmenntir.
|
| |
|
ASTRID LINDGREN VERÐLAUNIN 2005
Japanski myndlistarmaðurinn Ryôji Arai og breski rithöfundurinn Philip Pullman hljóta verðlaunin 2005
(Vefstjórinn Anna Heiða gat ekki stillt sig um að setja mynd af sér ásamt Pullman með þessari frétt)
|
 |
„The Astrid Lindgren Memorial Award“ árið 2005 rennur til japanska myndlistarmannsins Ryôji Arai og breska rithöfundarinis Philip Pullman. Dómnefndin hafði þetta að segja um verðlaunahafana:
„Ryôji Arai (Japan) is an illustrator with a style all of his own: bold, mischievous and unpredictable. His picturebooks glow with warmth, playful good humour and an audacious spontaneity that appeals to children and adults alike. In adventure after adventure, colour flows through his hands in an almost musical way. As a medium for conveying stories to children, his art is at once genuine and truly poetic, encouraging children to paint and to tell their own stories".
„Philip Pullman (United Kingdom) is a master storyteller in a number of genres – from historical novels and fantasy to social realism and highly amusing parodies. With inventiveness, linguistic brilliance and psychological insight he creates and explores his own worlds without losing focus on here and now. Through his strong characters he stands firmly on the side of young people, ruthlessly questioning authority and proclaiming humanism and the power of love whilst maintaining an optimistic belief in the child even in the darkest of situations".
Þess ber að geta að hinn þekkti þríleikur Philip Pullmans, Gyllti áttavitinn, Lúmski hnífurinn og Skuggasjónaukinn, hefur komið út á íslensku í þýðingu Önnu Heiðu Pálsdóttur. Kvikmyndafyrirtækið New Line (sem gerði m.a. myndirnar um Hringadróttinssögu) hefur keypt kvikmyndaréttinn að þríleiknum og munu tökur á honum brátt hefjast. Þríleikurinn hefur verið settur á svið í Lundúnum með Timothy Dalton í aðalhlutverki, og hefur hann notið mikilla vinsælda. |
| |
|
VILBORG Á RITÞINGI Í GERÐUBERGI
VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR
Laugardaginn 2. apríl 2005 kl. 13.30-16.00
|
Vilborg Dagbjartsdóttir verður á Ritþingi laugardaginn 2. apríl n.k. kl. 13.30 í Gerðubergi. Stjórnandi er dr. Dagný Kristjánsdóttir prófessor. Spyrlar eru Guðbergur Bergsson rithöfundur og Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur. Viðar Eggertsson og Steinunn Ólafsdóttir lesa brot úr verkum Vilborgar.
Vilborg Dagbjartsdóttir fæddist á Hjalla á Vestdalseyri þann 18. júlí árið 1930. Hún fór í leiklistarnám til Lárusar Pálssonar árið 1951 og var síðan í námshring Gunnars R. Hansens í leiklist frá 1952-1953. Vilborg lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1952 og stundaði nám í bókasafnsfræðum við Háskóla Íslands árið 1982. Vilborg hefur starfað sem rithöfundur og barnakennari um árabil en hefur nú hætt kennslu. Eftir hana liggur fjöldi rita fyrir börn, bæði barnabækur, sagnabækur og námsefni, auk fjögurra ljóðabóka. Vilborg hefur verið mikilvirkur þýðandi og starfað ötullega að málefnum barna.
Hún varð fyrst manna til að fá verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 1996.
Í maí 2000 fékk hún bókmenntaverðlaun IBBY fyrir störf sín í þágu barna og framlag sitt til barnamenningar.
Forseti Íslands veitti henni heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu þann 17. júní 2000. Vilborg hlaut einnig heiðurslaun frá Alþingi 2004 og heiðurverðlaun DV 2005.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir í síma 5757707 eða holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Ritþing Gerðubergs hófu göngu sína mars árið 1999 og fyrstur á Ritþingi var Guðbergur Bergsson. Í kjölfarið hafa Árni Ibsen, Guðrún Helgadóttir, Þórarinn Eldjárn, Einar Már Guðmundsson, Ólafur Haukur, Matthías Jóhannessen og Arnaldur Indriðason komið fram á Ritþingi og rakið feril sinn með hjálp spyrla og áheyrenda. Eftir Ritþingin hafa verið gefin út hefti sem gerð eru eftir hljóðritun þinganna í samstarfi við RÚV.
|
| |
| READING 2004 Hvernig væri að bregða sér til KÚBU? Ráðstefna 24-29 október 2004
|
Kúbanska IBBY nefndin Mirta Aguirre Ibero-American Chair sem er að hluta til styrkt af IBBY í Brasílíu, IBBY í Kanada og hinu svokallaða „Fundalectura Colombia“ (brasilíska, kanadíska og kólumbíska IBBY) boða ráðstefnu undir fyrirsögninni “Reading 2005: to read the 21 st , For a Culture of Peace” Congress til þess að minnast þess að 110 ár eru liðin frá falli José Martí´s fall í stríði, lestrarátaksins and „Ibero-American Reading Year“, 200 ára afmælis H.C. Andersen, 400 ára afmælis fyrstu útgáfunnar af Kíkóta og 30 ára afmælis heimsráðstefnu IBBY.
Heilmikið verður af góðum fyrirlestrum og fullt af tækifærum til að taka þátt í vinnuhópum um ýmis málefni sem varða barnabókmenntir.
Þátttakendur: Rithöfundar, myndlistamenn, hönnuðir, ritstjórar, fræðimenn, kennarar, bókaverðir, bóksalar, félagsfræðingar, þýðendur, forsvarsmenn lestrarátaka, heilsugæslufólk, fjölmiðlafólk, auglýsingastofur, nemendur, fólk í upplýsingageiranum o.m.fl.
Opinber tungumál ráðstefnunnar eru spænska og enska (túlkun æa bæði tungumálin). Stuðningsaðilar eru m.a. UNESCO og CERLALC (Regional Center for the Promotion of Books in Latin America and the Caribbean). Ráðstefnan verður haldin á „Habana Libre Tryp Sol Meliá Hotel“.
Þátttökugjald er 300 CUC (sem er nokkurn veginn það sama og USD, þ.e. ca. um 18.000 íslenskar krónur). Lokadagur til að skrá sig á ráðstefnuna er 30. júlí 2005.
> Meira um ráðstefnuna á PDF-skjali |
|
|