Fundargerðir

Um IBBY

  Hvað er IBBY?
  Saga IBBY á Íslandi
  Fréttasíða
  - Fréttir 2009
  - Fréttir 2008
  - Fréttir 2007
  - Fréttir 2006
  - Fréttir 2005
  - Fréttir 2004
  - Fréttir 2003
  Stjórnin
FRÉTTIR 2006


Yfirlit:

9. október 2006 Bókakaffi Ibby - Sitji guðs englar
11. september 2006 Ráðstefnan Köttur úti í mýri
11. september 2006 Vetrarstarf IBBY hafið
29. maí 2006 Munið aðalfundinn
23. maí 2006 Smásagnasafnið Heil brú
23. maí 2006 Vorvindaviðurkenningar veittar
23. maí 2006 H.C. Andersen verðlaunin veitt
8. maí 2006 Tilkynning um Vorvindahátíð
6. maí 2006 Tilkynning um aðalfund
20. apríl 2006 Barnabókaverðlaun fræðsluráðs veitt
24. janúar 2006 Tilkynning um Gerðubergsráðstefnu



9. október 2006
Sitji guðs englar á Súfistanum

Bókakaffi IBBY verður haldið á Súfistanum, annarri hæð í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, fimmtudaginn 12. október kl. 20.00.
Ingibjörg Hafliðadóttir, Silja Aðalsteinsdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir og Þórdís Gísladóttir lesa hver sinn kafla úr vinsælum þríleik Guðrúnar Helgadóttur um líf stórrar fjölskyldu í Hafnarfirði á stríðsárunum og flytja stuttar hugleiðingar sem tengjast efni bókanna.
Allir eru hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir - og að sjálfsögðu er aðgangur ókeypis.

11. september 2006
Ráðstefna í Norræna húsinu
Árið 2002 var haldin barnabókaráðstefna í Norræna húsinu undir yfirskriftinni „Köttur úti í mýri" og IBBY á Íslandi var einn af aðstandendum hennar. Framtak þetta fékk svo góðar undirtektir að árið 2004 var önnur ráðstefna haldin í þessum dúr og hún kallaðist „Galdur úti í mýri." Þessar ágætu uppákomur virðast verða reglulegur haustviðburður annað hvert ár og nú í haust mun ráðstefnan kallast „Krakkar úti í mýri." Fulltrúi IBBY á Íslandi í undirbúningsnefndinni er Þorbjörg Karlsdóttir og hún hefur gefið vefstjóra upplýsingar um væntanlega ráðstefnu.

Herlegheitin standa frá miðvikudeginum 27. september til föstudagsins 29. september. Fullbúin dagskrá verður kynnt á síðunni okkar innan skamms en hér er auðsjáanlega um auðugan garð að gresja. Meðal fyrirlesara og barnabókahöfunda eru:

  • Böðvar Guðmundsson
  • Davíð Þór Jónsson
  • Aslaug Jónsdóttir
  • Þórarinn Eldjárn
  • Kirsi Kunnas
  • Brian Moses
  • Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
  • Hal Sirowitz
  • Leelo Tungal
  • Thorstein Thomson
  • Ulla Berglindh
  • Guðrún Hannesdóttir
  • Olga Guðrún Árnadóttir
  • Leena Kirstinä
  • Una Margreth Jónsdóttir
  • Mårten Melin
  • Gillian Johnson

Takið frá þessa þrjá daga ef þið mögulega getið, því alls konar sýningar og uppákomur eru í boði á vegum mótshaldara.

11. september 2006
Vetrarstarf IBBY hafið
IBBY stjórnin hóf vetrarstarfið 2006-2007 með fundi 7. september sl. og voru lögð drög að föstum starfsliðum ásamt því að ný verkefni voru rædd. Ljóst er að starfsemin verður lífleg í vetur og margt spennandi framundan. Skipti stjórnin með sér verkum sem hér segir:
Stjórn:
Formaður: Guðlaug Richter
Varaformaður: Iðunn Steinsdóttir
Gjaldkeri: Sólveig Ebba Ólafsdóttir
Ritari: Þorbjörg Karlsdóttir
Norrænn tengiliður: Sigríður Matthíasdóttir
Vefsíðustjóri: Anna Heiða Pálsdóttir
Ritnefnd:
Ritstjóri: Þórdís Gísladóttir
Brynja Baldursdóttir
Oddný S. Jónsdóttir

29. maí 2006
Munið aðalfundinn
Aðalfundur IBBY á Íslandi verður haldinn í veitingahúsinu Lækjarbrekku kl. 17 þriðjudaginn 30. maí. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

23. maí 2006
Smásagnasafnið Heil brú
Á Vorvindahátíðinni í dag var goðsagnabokin Heil brú kynnt en hún var unnin með þeim óvenjulega hætti að fyrst voru myndirnar teiknaðar en sagan skrifuð á eftir. Bókin er gefin út í samvinnu IBBY á Íslandi og Eddu útgáfu.
>Skoða síðu um bókaútgáfu Ibby á Íslandi


23. maí 2006
Þrennar viðurkenningar veittar
Í dag voru veittar hinar árlegu Vorvindaviðurkenningar en að þessu sinni hlutu þær Sigrún Eldjárn sem mynd- og rithöfundur, Bernd Ogrodnik fyrir starf sitt við leikbrúður og Björk Bjarkadóttir fyrir ritstörf í þágu barna.
>Meira


23. maí 2006
HC Andersen verðlaunin 2006
Dómnefnd Hans Christian Andersen verðlaunanna hefur ákveðið að Margaret Mahy frá Nýja Sjálandi hljóti verðlaunin í flokki rithöfunda og Wolf Erlbruch frá Þýckalandi í flokki myndskreyta. Verlaunin verða afhent á alþjóðlegri ráðstefnu IBBY í Kína þann 20. september nk.
> Meira á síðu alþjóðlegu IBBY-samtakanna


8. maí 2006
Vorvindahátíðin 2006
Vorvindar þessa árs verða haldnir þriðjudaginn 23. maí kl. 17.00 í Borgarbókasafninu.

Dagskrá:

1. Ávarp formanns
2. Kynning á nýútkominni bók, Heilli brú, sem IBBY á Íslandi
-- hefur staðið að ásamt Eddu útgáfu.
3. Afhending þriggja viðurkenninga.


6. maí 2006
Aðalfundur
Aðalfundur IBBY á Íslandi verður haldinn 30. maí nk. kl. 17.00 í Lækjarbrekku og fara þar fram hefðbundin aðalfundarstörf þar sem meðal annars verður kosið í nýja stjórn.

Í stjórn vantar ritstjóra og leitast er eftir framboði. Stjórnin hvetur alla félaga til að mæta á aðalfundinn.


20. apríl 2006
Áslaug Jónsdóttir og Sigrún Árnadóttir hlutu barnabókaverðlaun Reykjavíkur
Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur hlaut barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur sem besta frumsamda bókin. Verðlaun fyrir bestu þýddu barnabókina fékk Sigrún Árnadóttir fyrir Appelsínustelpuna eftir norska höfundinn Jostein Gaarder. Mál og menning gaf báðar bækurnar út.



24 . janúar 2006

Gerðubergsráðstefnan
Nú líður að hinum árlega viðburði sem allir barnabókaunnendur bíða eftir: Gerðubergsráðstefnunni, en hún verður haldin laugardaginn 18. mars 2006. Hér er dagskráin komin:

Heillandi heimur: Goð, börn og valkyrjur

Kl. Lýsing:
10.30 Ráðstefnan sett
10.35 Sölvi Sveinsson
„Goðafræði í endurvinnslu"
11.05 Kristín Ragna Gunnarsdóttir, myndskreytir
„Upp sé ég koma öðru sinni". Fyrirlestur um bók hennar og Þórarins Eldjárns, Völuspá.
11.35 Hádegisverður
12.10 Kynning: „Heil brú og aðrar sögur.”
Sögur úr norrænni goðafræði. Að undirbúningi útgáfu þessarrar bókar stendur Íslandsdeild IBBY í samstarfi við Eddu og er hún önnur bókin sem þessir aðilar standa að. Fyrri bókin heitir Auga Óðins.
12.40 Helgi Már Friðgeirsson; Nexus.
Helgi, sem er frá versluninni Nexus, kynnir hlutverkaleiki í tengslum við goðafræðina
13.15 Ráðstefnuslit



 


 
IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir