Fundargerðir

Um IBBY

  Hvað er IBBY?
  Saga IBBY á Íslandi
  Fréttasíða
  - Fréttir 2008
  - Fréttir 2007
  - Fréttir 2006
  - Fréttir 2005
  - Fréttir 2004
  - Fréttir 2003
  Stjórnin
FRÉTTIR 2007


YFIRLIT

30. nóvember 2007 Börn og menning 2/2007 komið út
20. nóvember 2007 Dimmalimm - Íslensku myndskreytiverðlaunin 2007
20. nóvember 2007 Sigrún Eldjárn á Ritþingi Gerðubergs
20. nóvember 2007 Sýning úr söguheimi Sigrúnar Eldjárn
8. október 2007 Bókakaffi á Súfistanum - Gott kvöld
22. ágúst 2007 Málþing um Guðjón Sveinsson á Höfn
21. ágúst 2007 Nordisk blað komið út á PDF-formi
9. júní 2007 Barnamenning - skiptir fagurfæðin máli?
17. maí 2007 Ráðstefna um neyslumenningu barna og unglinga
15. maí 2007 Dómnefnd fyrir Íslensku barnabókaverðlaunin 2007 hefur lokið störfum
13. maí 2007 Þrír hlutu Vorvinda IBBY
1. maí 2007 Hátíðahöld hjá IBBY í Finnlandi
30. apríl 2007 Kristín Helga og Guðni Kolbeinsson verðlaunuð
26. apríl 2007 Tilkynning um dagsetningu Vorvinda
26. apríl 2007 Aðalfundur - tilkynning
19. apríl 2007 Bókmenntaganga fyrir börn og fjölskyldur
16. apríl 2007
16. apríl 2007
14. apríl 2007
2. apríl 2007
21. mars 2007 Barnabókadagurinn 2. apríl

30. nóvember 2007
Börn og menning - sérstök áhersla á Astrid Lindgren
Hausthefti 22. árgangs tímaritsins Börn og menning er komið út. Blaðið er gefið út af IBBY á Íslandi tvisvar á ári.

Efni blaðsins er fjölbreytt að vanda. Í tilefni 100 ára fæðingarafmælis Astridar Lindgren nú í nóvember, skrifa Katrín Jakobsdóttir, Erna Erlingsdóttir og Guðrún Lára Pétursdóttir greinar um bækur höfundarins auk þess sem Sigþrúður Gunnarsdóttir segir frá pílagrímsferð á heimaslóðir Astridar.

Í haust eru liðin 150 ár frá fæðingu rithöfundarins og prestsins Jóns Sveinssonar, Nonna, og minnist Björn Bjarnason, ráðherra hans í blaðinu.

Að vanda er í Börnum og menningu fjallað um barnabækur og barnaleikhús, meðal höfunda efnis eru Brynhildur Björnsdóttir, Hermann Stefánsson, Ingólfur Gíslason, Þorgerður Jörundsdóttur og Æsa Guðrún Bjarnadóttir. Þá má í blaðinu finna viðtal við höfundinn og þýðandann Rúnar Helga Vignisson og Stefán Pálsson skrifar pistil um tombólur fyrr og nú.

Samtökin IBBY á Íslandi voru stofnuð í Reykjavík árið 1985 og hafa það að markmiði að stuðla á allan hátt að eflingu barnabókmennta og annarrar barnamenningar. Áhugafólk um barnamenningu er hvatt til að gerast félagar í IBBY og jafnframt áskrifendur að Börnum og menningu með því að senda tölvupóst á netfangið: bornogmenning@gmail.com.

Ritstjóri Barna og menningar er Þórdís Gísladóttir.

 

20. nóvember 2007
Dimmalimm - Íslensku myndskreytiverðlaunin 2007
Félagar IBBY eru velkomnir á opnun sýningarinnar Þetta vilja börnin sjá! í Gerðubergi laugardaginn 24. nóvember kl. 16.00. Íslensku myndskreytiverðlaunin, sem kennd eru við Dimmalimm, verða veitt fimmtudagskvöldið 6. desember kl. 20.00. Félag íslenskra bókaútgefenda, Myndstef og Penninn standa að verðlaununum ásamt Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Í dómnefnd eru þau Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, Kalman le Sage de Fontenay, auglýsingateiknari og Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona. Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 2002.
> sjá nánar


20. nóvember 2007
Sigrún Eldjárn á Ritþingi Gerðubergs
Sigrún Eldjárn situr fyrir svörum á Ritþingi Gerðubergs 24. nóvember, kl. 13:30-16:00. Stjórnandi þingsins er Sigþrúður Gunnarsdóttir og í hlutverki spyrla eru þau Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Margrét Tryggvadóttir. Tónlistaratriði: Grímur Hjörleifsson og Kristján Eldjárn Hjörleifsson. Styrktaraðili er Forlagið og allir eru velkomnir.


20. nóvember 2007
Sýning úr söguheimi Sigrúnar Eldjárn
Gerðuberg býður upp á sýningu úr söguheimi Sigrúnar Eldjárn frá 24. nóvember til 13. janúar. Þegar Ritþinginu lýkur kl. 16 verður opnuð sýning þar sem gestir eru boðnir í heimsókn á heimili Málfríðar, sem líklega má teljast með frægari sögupersónum Sigrúnar. S ýningin er fyrir börn og fullorðna á öllum aldri!! Sýningarstjórar: Anik Todd og Una Stígsdóttir. Ókeypis aðgangur er á ritþingið og sýninguna!

8. október 2007
Gott kvöld á Súfistanum - bernskan og óttinn

Bókakaffi verður haldið fimmtudaginn, 11. október, kl. 20.00 á Súfistanum Laugavegi 18. Dagskrá Bókakaffisins tengist sýningu Þjóðleikhússins á barnaleikritinu Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur bókverkakonu. Að auki verður kastljósinu beint að bókum Áslaugar.
- Þórdís Þórðardóttir, lektor í uppeldis- og menntunarfræði, KHÍ, fjallar um það hvað fjögurra og fimm ára börn hafa að segja um barnabækur sem „ gefa kitl í magann “
- Áslaug Jónsdóttir, Helga Arnalds brúðuleikari og Þórhallur Sigurðsson leiksjóri segja frá sköpun leikverksins Gott kvöld frá ýmsum hliðum.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

22. ágúst 2007
Málþing um Guðjón Sveinsson - Höfn 1. september

Laugardaginn 1. september verður haldið málþing um Guðjón Sveinsson, rithöfund á Breiðdalsvík. Blásið er til málþingsins í tilefni þess að Guðjón varð sjötugur fyrr á árinu og á um þessar mundir fjörutíu ára höfundarafmæli. Málþingið er haldið á vegum Fræðaseturs Háskóla Íslands á Höfn og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Þingið fer fram í Nýheimum, Litlubrú 2 á Höfn, og hefst kl. 13. Málþingið er öllum opið.
........Margir áhugaverðir fyrirlestrar verða í boði en auk þess mun kvennakór Hornafjarðar syngja og Guðjón Sveinsson flytur ávarp. Smellið hér til að skoða dagskrána á PDF og prenta út ef vill.

21. ágúst 2007
Nordisk blad - á PDF

Félagar í IBBY á Íslandi eru Nordisk blad mjög kunnugir, þar sem blaðið hefur um árabil fylgt með Börnum og menningu einu sinni á ári. Í ár ákváðu norrænu deildirnar að gefa út blaðið í tölvutæku formi til þess að spara útgáfukostnað. Það er þó veglegt að vanda og mikið af áhugaverðu efni er að finna í blaðinu, ásamt enskum úrdrætti.
........Meginþema blaðsins að þessu sinni eru unglingabækur og þróun þeirra, og hvernig bækur er svalt að láta sjá sig með í strætó eða í skólanum. Framlag Svía er eftir Jan Hansson og nefnist: „ Vilka böcker bär svenska barn och ungdomar med stolthet och glädje i skolkorridorer, på bussar och på trottoarer just nu?" Norska greinin heitir „Frie, frodige, frenetiske, fantastiske og finurlige. Nyere norske ungdomsbøker jeg gjerne ville ha oversatt," en það er Mette Hofsødegård sem skrifar hana. Frá Danmörku kemur „Ung må verden atter være. En kommentar til forholdet mellem voksen- og ungdomsbøger belyst
ved et aktuelt dansk eksempel" eftir Steffen Larsen. Smelltu hér til að skoða blaðið (4 Mb á PDF).

9. júní 2007
Barnamenning - skiptir fagurfæðin máli?

Dagana 25.-18. október verður haldin ráðstefna um barnamenningu á Hótel Örk í Hveragerði. Ráðstefnan, sem haldin er á vegum BIN i Norden, skiptist í tvö þemu:
Merking fagurfræði í menningu barna og merking fagurfræði í menningu (fullorðinna) fyrir börn.
........ Aðalfyrirlesarar eru prófessor Jon-Roar Bjørkvold frá Noregi og Suzanne Osten frá Svíþjóð. Jon-Roar Bjørkvold er þekktur bæði fyrir fjörlega og afar áhugaverða fyrirlestra. Hans sérsvið er hlutverk fagurfræði, einkum tónlistar, í uppeldi barna. Bækur hans um þetta efni hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál. Hinn aðalfyrirlesarinn er Suzanne Osten, leikstjóri og stofnandi leikhússins Unga Klara í Stokkhólmi. Með henni fyrirles Karin Helander, prófessor í leikhússfræðum við Stokkhólmsháskóla. Auk aðalfyrirlestra og umræðna um þá verður unnið í málstofum um merkingu fagurfræði í hverdegi barna, um rými, smekk, leik, reynslu, vináttu og átök og um merkingu fagurfræði í menningarmiðlun, kvikmyndum, leikhúsi, tónlist, auglýsingum á netinu og fleira.
........ Nánari upplýsingar og skráningareyðublað er hægt að nálgast á vef Bin i Norden.

24. maí 2007
AÐALFUNDUR Í DAG

Munið aðalfundinn í dag! Hann verður haldinn á veitingahúsinu Lækjarbrekku kl. 17:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

17. maí 2007
Ráðstefna um neyslumenningu barna og unglinga

Vefmeistara hefur borist tilkynning, eða „Call for Papers" vegna ráðstefnu sem verður haldin 24.-25. apríl 2008 í Þrándheimi í Noregi.

Þar verður m.a. fjallað um markaðsvæðingu á vörum fyrir börn, auglýsingar sem vísa til barna, sögu neyslumenningar o.fl. Tungumál ráðstefnunnar verður enska.

Hafir þú áhuga á að flytja fyrirlestur á þessari ráðstefnu eða vita meira um hana, smelltu hér.

15. maí 2007
Dómnefnd fyrir Íslensku barnabókaverðlaunin 2007 hefur lokið störfum

(Frá Eddu útgáfu) Verðlaunahandritið kemur út á bók í haust og að venju verður um leið kunngjört hver er höfundur þess. Að þessu sinni bárust 13 handrit í keppnina en alger einhugur var í dómnefndinni um niðurstöðuna. Dómnefndina skipa auk fulltrúa Eddu, fulltrúar frá fjölskyldu Ármanns Kr. Einarssonar, IBBY á Íslandi og Barnavinafélaginu Sumargjöf. Á lokasprettinum bættust svo við tveir fulltrúar lesenda, stelpa og strákur úr 8. bekk í Digranesskóla. Haft hefur verið samband við verðlaunahöfundinn en aðrir höfundar geta sótt handrit sín í afgreiðslu Eddu útgáfu að Suðurlandsbraut 12. Handritum sem ekki hafa verið sótt innan 3 mánaða verður fargað.
> skoða verðlaunahafa undanfarinna ára

13. maí 2007
Þrír hlutu Vorvinda IBBY

Í dag var hin árlega viðurkenning IBBY á Íslandi veitt þremur aðilum við skemmtilega athöfn í Gunnarshúsi, aðsetri Rithöfundasambands Íslands.

Þetta var í 20. sinn sem viðurkenningin er veitt en hún hefur hlotið athyglli sem ein helsta viðurkenning fyrir framlag til barnamenningar á Íslandi. Að þessu sinni hlutu Borgarbókasafn Reykjavíkur, Þorgerður Jörundsdóttir og Örnólfur Thorlacius Vorvindana.
> sjá nánar

1. maí 2007
Hátíðahöld hjá IBBY í Finnlandi

IBBY í Finnlandi hefur starfað í 50 ár og fagnar þeim tímamótum á ýmsan hátt allt árið 2007. Hátíðahöldin hófust með sýningu sem var opnuð þann 1. mars sl. í barnamenningarhúsinu Annantalo í Helsinki. Á sýningunni var að finna frumgerðir af verkum ýmissa höfunda, m.a. Tove Jansson og þeirra sem tilnefndir eru til H.C. Andersen verðlaunanna. Bækur og annað efni sem finnska IBBY hefur gefið út var einnig hægt að skoða á sýningunni sem lauk þann 25. mars.
------ Samtökin gefa út alls konar efni í tilefni afmælisins, m.a. sögu IBBY í Finnlandi, bækling sem fjallar um ljóð fyrir börn og annan um lesefni fyrir börn með lestrarörðugleika. Í árslok kemur úr stór bók með 13 greinum um ævintýri og sögur, og 37 greinum um finnska höfunda sem skrifa fyrir börn. Þann 9. nóvember verður svo alþjóðleg ráðstefna í Helsinki, þar sem margir áhugaverðir fyrirlestrar verða haldnir um barnabækur og barnamenningu. Sjá meira hér.

30. apríl 2007
Kristín Helga og Guðni Kolbeinsson verðlaunuð

(Frétt frá Borgarbókasafni) Bókaverðlaun barnanna voru afhent í sjötta sinn á sumardaginn fyrsta. Verðlaunaafhendingin var á fjölskyldudagskrá í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi. Hildur Baldursdóttir, barnabókavörður í Kringlusafni, afhenti verðlaunin og henni til aðstoðar var Jón Víðis töframaður.

------ Yfir 5.000 börn á aldrinum 6 – 12 ára á öllu landinu tóku þátt í kosningunni, en hún fór fram á almennings- og skólabókasöfnum. Borgarbókasafn Reykjavíkur hafði frumkvæði að því að koma þessum verðlaunum á fót, en nú eru þau samstarfsverkefni bókasafna um allt land. Verðlaunin eru veitt í tveimur flokkum, fyrir frumsamda íslenska barnabók annars vegar og hins vegar fyrir þýðingu.
------ Kristín Helga Gunnarsdóttir hlaut verðlaunin í flokki frumsaminna bóka fyrir bók sína Fíasól á flandri sem Halldór Baldursson myndskreytti og Guðni Kolbeinsson hlaut verðlaunin í flokki þýddra bóka fyrir Eragon : Öldungurinn. Verðlaunin að þessu sinni var bókin um Kjarval sem Nesútgáfan gaf út.

26. apríl 2007
Vorvindar

Einhverjir hafa haft áhyggjur af því að Vorvinda-viðurkenningin hætti vegna þess að nú hefur IBBY á Íslandi tekið upp Sögustein í samvinnu við Glitni. Ekki örvænta, við höldum áfram með Vorvindana, sem eiga sér fastan sess í íslenskri barnabókamenningu. Vorvindarnir hafa verið mörgum nýjum höfundinum stökkpallur til áframhaldandi frægðar (t.d. Yrsu Sigurðardóttur, Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Sigrúnu Eldjárn). Þá hefur viðurkenningin veitt einstaklingum heiður sem þeir hafa átt skilinn um lengri tíma. Viðurkenningin er veitt fyrir ýmis svið barnamenningar: bækur, geisladiska, leikrit, kvikmyndir, þýðingar o.m.fl.
------ Vorvindahátíðin í ár verður í höfuðstöðvum bókmenntanna, í Gunnarshúsi við Dyngjuveg, sunnudaginn 13. maí kl. 14:00. Kæru félagar og aðrir unnendur barnamenningar, jafnið ykkur eftir kosningasigur (eða ósigur) og losið ykkur við Eurovision-spennuna (frá kvöldinu áður) og gleðjist með okkur á góðri stund í Gunnarshúsi, með heitum vöfflum, kaffi og ávaxtadrykkjum fyrir börnin.

26. apríl 2007
Aðalfundur

Okkar árlegi og skemmtilegi aðalfundur verður haldinn á veitingahúsinu Lækjarbrekku fimmtudaginn 24. maí kl. 17:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin hvetur þá félaga sem hafa áhuga á að sitja í stjórninni endilega að láta okkur vita (t.d. með tölvupósti til formannsins, sjá „hafðu samband").

19. apríl 2007
Bókmenntaganga fyrir börn og fjölskyldur

Í tilefni „Viku bókarinnar" efnir Borgarbókasafnið til bókmenntagöngu fyir börn og fjölskyldur. Veitt verður leiðsögn um söguslóðir nýlegra barnabóka. Gestur göngunnar er Sigrún Eldjárn sem spjallar og les upp. Lagt verður af stað frá Grófarhúsi (aðalbókasafni BBS), Tryggvagötu 15 sunnudaginn 22. apríl kl. 15:00.

18. apríl 2007
Áslaug Jónsdóttir fær öðru sinni Barnabókaverðlaun menntaráðs

Áslaug Jónsdóttir bókverkakona gerir það ekki endasleppt í smíði barnabóka í hæsta gæðaflokki, en hún hlaut í dag barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar annað árið í röð. Verðlaunin fær hún fyrir bókina Stór skrímsli gráta ekki sem hún samdi og myndskreytti ásamt Svíanum Kalle Güettler og Rakel Helmsdal frá Færeyjum. Áslaug fékk einnig barnabókaverðlaun menntaráðs í fyrra fyrir bókina Gott kvöld. Verðlaun fyrir bestu þýðingu barnabókar 2007 fær Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur fyrir Sólvæng eftir kanadíska rithöfundinn Kenneth Oppel.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri afhenti barnabókaverðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í dag að viðstöddum fjölmörgum gestum. Þetta er í 35. sinn að yfirvöld menntamála í Reykjavík verðlauna rithöfunda og þýðendur barnabóka fyrir afburða góðar bækur í þeim tilgangi að vekja athygli á mikilvægi góðra bókmennta í uppeldisstarfi. Úthlutunarnefnd var að þessu sinni skipuð Guðrúnu Pálínu Ólafsdóttur formanni, Sigrún Elsu Smáradóttur og Lilju Margréti Möller.

Í bókinni Stór skrímsli gráta ekki segir frá samskiptum stóra og litla skrímslis. Stóra skrímslið virðist ekki geta gert neitt rétt, litla skrímslið veit allt best.


Sagan er einstaklega falleg, einföld en skýr þar sem boðskapurinn er að allir hafa sína kosti og galla og að eðlilegt sé að sýna tilfinningar sínar. Myndirnar falla sérstaklega vel að textanum, þær eru skemmtilega skondnar og litaval til fyrirmyndar. Edda útgáfa gaf bókina út.


Í Sólvæng segir af leðurblökunni Skugga sem heldur í ævintýralega leit að föður sínum.

Sagan er ákaflega vel þýdd af Rúnari Helga Vignissyni og heldur lesanda límdum við bókina frá upphafi til enda. Útgefandi er Græna húsið.

16. apríl 2007
Börn og menning
- alltaf glæsilegra
Tímaritið Börn og menning 1. tbl. 2007 er komið út. Í blaðinu eru birtar greinar um barnabókmenntir, tónlist, leiklist og ýmislegt fleira sem tengist barnamenningu.

Meðal efnis í þessu nýjasta hefti má nefna grein eftir Ármann Jakobsson um hina sígildu sögu um Stubb eftir Bengt og Grete Janus Hertz, Guðrún Hannesdóttir skrifar um gamla húsganga og lausavísur.

Þorgerður E. Sigurðardóttir fjallar um hinar sívinsælu Nancy-bækur og einnig skrifar hún grein um þróun Latabæjar frá leiksviði til stafræns myndefnis og Ævar Örn Jósepsson skrifar grein með yfirskriftina „Hetjur og varðeldar“, þar sem hann rifjar upp lestur sinn af sígildum drengjabókum.

Sigfríður Gunnlaugsdóttir skrifar um barnæskuna í Malaví, Margrét Örnólfsdóttir, Harpa Jónsdóttir og Dr. Gunni fjalla um nýlega útgefið tónlistarefni og Bjarni Guðmarsson skrifar um leikritið Abbababb. Þá eru einnig í blaðinu greinar um nýlegar barnabækur eftir Arndísi Þórarinsdóttur, Ingólf Gíslason o.fl.

Börn og menning kemur kemur út tvisvar á ári á vegum Íslandsdeildar IBBY-samtakanna. Ritstjóri er Þórdís Gísladóttir. Hægt er að gerast áskrifandi að Börnum og menningu með því að senda póst á netfangið "bornogmenning (hjá) hotmail.com" Smelltu hér til að skoða eldri blöð.

14. apríl 2007
Brynhildur Þórarinsdóttir hlýtur Norrænu barnabókaverðlaunin
Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur, hlýtur Norrænu barnabókaverðlaunin í ár fyrir bækurnar Njálu, Eglu og Laxdælu sem komu út á árunum 2002-2006

Norrænu barnabókaverðlaunin eru heiðursverðlaun sem samtök norrænna skólasafnakennara standa að. Þau hafa verið veitt frá árinu 1985, og þetta er í fjórða sinn sem íslenskur höfundur hlýtur verðlaunin. Árið 1992 hlaut Guðrún Helgadóttir þau, 2003 komu þau í hlut Kristínar Steinsdóttur, og 2005 fékk Ragnheiður Gestsdóttir þau.

Dómnefnd telur bækur Brynhildar vandaðar og skýrar endursagnir á þremur af þekktustu Íslendingasögunum. Sögurnar séu ekki aðeins merkur hluti íslenskrar menningar og sagnaarfs heldur sameiginlegur grundvöllur norrænnar menningar. Bækurnar séu aðgengilegar fyrir börn og persónur sagnanna stígi ljóslifandi fram. Fróðleiksmolar um sögusvið og sögutíma auka á gildi verkanna ásamt orð- og ljóðaskýringum. Dómnefnd álítur þessar bækur veita börnum innsýn í heim fornsagna, henta vel hvort sem er til kennslu eða yndislestrar og eiga þannig erindi til barna á öllum Norðurlöndunum.

Brynhildur Þórarinsdóttir er fædd 1970. Hún er M.A. í íslenskum bókmenntum og lauk kennsluréttindanámi árið 2005 við Háskólann á Akureyri, þar sem hún starfar nú. Hún hefur skrifað skáldsögur og smásögur fyrir börn og unglinga og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. íslensku barnabókaverðlaunin 2004 fyrir Leyndardóm ljónsins, Vorvinda IBBY 2003 fyrir Njálu, og verðlaun fyrir smásögu í samkeppni Félags móðurmálskennara. Brynhildur er bæjarlistamaður Akureyrar júní 2006-maí 2007.

Verðlaunin verða afhent í Danmörku í júlí næstkomandi og fulltrúi Íslands þar og formaður dómnefndar er Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir, skólasafnskennari í Langholtsskóla.

2. apríl 2007
Sigrún Eldjárn hlaut Sögusteininn

Sigrún Eldjárn hlaut Sögusteininn, ný barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi og Glitnis, sem voru afhent í fyrsta sinn á alþjóðlegum degi barnabókarinnar í dag.

Upphæð verðlaunanna er 500.000 krónur en þau eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenska barnabókmenntir.

Var það einróma álit valnefndar, sem skipuð var Önnu Heiðu Pálsdóttur, bókmenntafræðingi, Ármanni Jakobssyni, bókmenntafræðingi og Rögnu Sigurðardóttur, myndlistarkonu og rithöfundi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti Sigrúnu verðlaunin við hátíðlega athöfn sem haldin var á vegum IBBY og Borgarbókasafnsins að viðstöddu fjölmenni.

Auk verðlaunafjárins fékk Sigrún til eignar fallegan verðlaunagrip sem hannaður var af Önnu Þóru Árnadóttur, grafískum hönnuði, sem einnig hannaði merki Sögusteinsins.

21. marz 2007
Barnabókadagurinn 2. apríl

Hinn alþjóðlegi dagur barnabókarinnar er fæðingardagur H. C. Andersens, 2. apríl. Á þessum degi er efnt til alls konar viðburða víða um heim í því augnamiði að vekja sérstaka athygli á barnabókum og mikilvægi lesturs fyrir börn og ungmenni. IBBY á Íslandi hefur ákveðið að beita sér fyrir því að þessa dags verði minnst hér á landi í fyrsta sinn 2. apríl 2007 og síðan vonandi á hverju ári.

IBBY ætlar að leggja sitt af mörkum með því að standa fyrir viðburði í aðalsafni Borgarbókasafnsins – sem verður nánar auglýst síðar. Hefur félagið einnig haft samband við samtök listamanna og fleiri aðila sem tengjast barnabókmenntum og óskað eftir því að lagst verði á eitt til að vekja athygli á barnabókum 2. apríl. Meðal annars munu barnabókahöfundar lesa úr verkum sínum.

Leggjumst öll á eitt til að gera þennan dag að þeirri hátíð barnabókmennta sem hann er víða í öðrum löndum.

ELDRI fréttir

Sjá fréttir ársins 2006
Sjá fréttir ársins 2005
Sjá fréttir ársins 2004
Sjá fréttir ársins 2003

 

 
IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir