YFIRLIT
(smellið á frétt til að skoða eða flettið niður síðuna)

20. maí 2008
Vorvindar 2008
IBBY á Íslandi afhenti árlegar viðurkenningar fyrir gott framlag til barnamenningar sunnudaginn 18. maí í Gunnarshúsi við Dyngjuveg . Gerður Kristný hlaut viðurkenningu fyrir barnabækur sínar, Mörtu smörtu, Jóladýrin, Land hinna týndu sokka og Ballið á Bessastöðum, sem allt eru vönduð og skemmtileg verk. Marta smarta sló strax í gegn hjá krökkunum sem veittu henni Bókaverðlaun barnanna 2003 og Ballið á Bessastöðum hefur kitlað hláturtaugar jafnt barna sem fullorðinna.
Una Stígsdóttir og Anik Todd hlutu viðurkenningu fyrir sýninguna Allt í plati sem opnuð var í Gerðubergi 24. nóvember sl. Í tengslum við ritþing um Sigrúnu Eldjárn. Á sýningunni gátu gestir upplifað heim þekktra sögupersóna Sigrúnar Eldjárn, þeirra Málfríðar, mömmu hennar og Kuggs með því að ganga inn á heimili þeirra. Var öllum 8 ára börnum boðið á sýninguna sem stóð í allan vetur og var afar vel sótt og vinsæl.
Þriðju viðurkenninguna hlaut tónlistarparið Dúó Stemma sem hefur glatt leikskólabörn með sögunni um Jón bónda sem byggist öðrum þræði á hljóðgjörningi . Dúó Stemmu skipa Herdís Anna Jónsdóttir, víóluleikari og Steef van Oosterhout , slagverksleikari sem hafa búið þekktar þulur og vísur í nýjan búning og leika undir á óhefðbundin heimatilbúin hljóðfæri. Þau fluttu stutt atriði fyrir samkomugesti á Vorvindahátíðinni við góðar undirtektir.

20. maí 2008
Börn og menning 1/2008 er komið út
Tímaritið Börn og menning, 1. tbl., 23. árg. 2008, er komið út. Meðal efnis má nefna grein eftir Ragnheiði Gló Gylfadóttur um barnafornleifafræði, Katrín Jakobsdóttir fjallar um Harry Potter-fyrirbærið, Sigríður Pétursdóttir um kvikmyndina Duggholufólkið, Eiríkur Örn Norðdahl skrifar um nýlega endurútgáfu bókar Muggs um negrastrákana tíu, Elva Björk Sverrisdóttir veltir fyrir sér nafngiftum, rifjaðar eru upp deilurnar um bókina Félaga Jesú, fjallað er um óvenjulega myndlistarsýningu blindra og sjónskertra barna og ýmislegt fleira áhugavert má að vanda finna í blaðinu. Kápumynd þessa heftis er eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur.
Börn og menning, sem gefið er út af íslandsdeild IBBY, er eina íslenska tímaritið sem eingöngu fjallar um barnabókmenntir og annað menningartengt efni fyrir börn. Blaðið kemur út tvisvar á ári og ristjóri er Þórdís Gísladóttir. Nánari upplýsingar má fá með því að senda póst á Börn og menningu.
Kristín Steinsdóttir hlaut Sögustein 2008
Sögusteinn, barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi og Glitnis, voru afhent í annað sinn á alþjóðlegum degi barnabókarinnar 2. apríl 2008. Upphæð verðlaunanna er 500.000 kr. en þau eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenskar barnabókmenntir.
Var það einróma álit valnefndar, sem skipuð var Önnu Heiðu Pálsdóttur, bókmenntafræðingi, Ármanni Jakobssyni, bókmenntafræðingi og Rögnu Sigurðardóttur, myndlistarkonu og rithöfundi, að Kristín Steinsdóttir skyldi hljóta verðlaunin að þessu sinni. Í greinargerð valnefndar segir meðal annars:
“Kristín Steinsdóttir hefur verið einn af afkastamestu barnabókahöfundum þjóðarinnar í tvo áratugi og bækur hennar hafa notið mikillar hylli bæði lesenda og gagnrýnenda. Hún sló í gegn strax í upphafi með bókinni Franskbrauð með sultu (1987) og hefur síðan sent frá sér margar sterkar bækur. Hún hefur þar að auki verið að sækja stöðugt í sig veðrið sem höfundur og margir telja að hún hafi samið sín allra bestu verk á þessum áratug, þar á meðal hina margverðlaunuðu Engil í Vesturbænum (2002).
Efnisval Kristínar hefur verið mjög fjölbreytt, sumar sögur hennar hafa verið ævintýra- og gamansögur en aðrar raunsæissögur með sterkum samfélagslegum undirtón. Hún hefur sótt efni í eigin uppvöxt, Íslandssöguna, íslenska þjóðtrú og síðast en ekki síst hefur hún jafnan lagt sérstaka rækt við að miðla sérstakri skynjun barnsins á umhverfi sínu. Með skrifum sínum hefur í senn hún lyft íslenskum barnabókmenntum og vakið athygli umheimsins á þeim. En ekki er þó minnst um vert að íslensk börn hafa bæði menntast og glaðst yfir bókum hennar um tveggja áratuga skeið.”
Frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti Kristínu verðlaunin við hátíðlega athöfn sem haldin var á vegum IBBY og Borgarbókasafnsins. Auk verðlaunafjárins fékk Kristín til eignar fallegan verðlaunagrip sem hannaður var af Önnu Þóru Árnadóttur, grafískum hönnuði, sem einnig hannaði merki Sögusteinsins.

12. mars 2008
Sögubíllinn er farinn af stað
(Frá Borgarbókasafni:) Æringi, sem er litli bróðir bókabílsins Höfðingja, ætlar að heimsækja alla leikskóla Reykjavíkur og bjóða börnunum í sögustund.
Efnt var til samkeppni meðal myndlistarmanna um skreytingar á sögubílinn og bar Brian Pilkington sigur úr býtum. Ævintýralegar myndir hans sem meðal annars sýna tröll, dreka, úlf, grísi og börn prýða nú bílinn.
Verkefnisstjóri sögubílsins, leikkonan María Pálsdóttir, mun ásamt barnabókavörðum Borgarbókasafns skipuleggja ferðir Æringja. Ætlunin er að lesa og segja sögur í bílnum en einnig eru uppi áform um samstarf við einstaklinga og stofnanir. Sögubílsstjórinn auglýsir sérstaklega eftir eldri borgurum sem langar að koma í bílinn og segja þeim yngri frá atburðum eða aðstæðum úr eigin bernsku. Það verður ánægjulegt að brúa kynslóðabilið í sögubílnum. Allar nánari upplýsingar veitir María Pálsdóttir í síma 664 7718, maria.palsdottir@reykjavik.is
9. janúar 2008
Dagur barnabókar - Sögusteinn - Gerðubergsráðstefnan
Félagar í IBBY eru eflaust með þéttsettna dagskrá í vor svo við viljum vekja athygli ykkar tímanlega á nokkrum atburðum. Þetta eru helstu dagsetningar:
- Miðvikudagur 2. apríl: Dagur barnabókarinnar (Sögusteinninn)
- Laugardagur 5. apríl: Ráðstefna um barnabækur í Gerðubergi
Við munum innan bráðar segja nánar frá þessum atburðum en í millitíðinni geta félagar IBBY á Íslandi merkt við þessa daga í dagbókinni sinni.
9. janúar 2008
Skráið ykkur tímanlega á heimsþingið
Heimsþing IBBY hefur sjaldan verið haldið nær okkur, landfræðilega séð, en í haust verður 31. þingið haldið í Kaupmannahöfn. Þema þingsins verður „Stories in History - History in Stories" sem er erfitt að þýða á íslensku öðru vísi en sögur í sögunni og sagan í sögum. Þingið verður haldið dagana 7.-10. september nk. Verndari þingsins er Margrét Danadrottning sem ávallt hefur sýnt mikinn áhuga á barnabókum. Þeir sem skrá sig fyrir þann 1. apríl fá afslátt af ráðstefnugjaldinu. Stjórn IBBY á Íslandi ætlar að fjölmenna og við vonum að sem flestir félagsmenn sjái sér fært að mæta.
> sjá nánar á vef IBBY-samtakanna í Danmörku (á ensku)
8. janúar 2008
Bókaormar hlutu verðlaun Evrópska skólanetsins
Vefurinn Bókaormar BarnUng á vegum Kennaraháskóla Íslands var á meðal verðlaunahafa í keppni Evrópska skólanetsins um eLearning Awards sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Brussel 6. desember. Bókaormarnir eru þróaðir af Torfa Hjartarsyni lektor við Kennaraháskóla Íslands og Þorbjörgu St. Þorsteinsdóttur í samvinnu við Davíð Einarsson forritara.
Bókaormarnir voru ásamt 12 öðrum verðlaunaverkefnum valdir úr hópi 563 verkefna frá 34 Evrópulöndum. Ormanna var sérstaklega getið í ræðu formanns dómnefndar sem dæmi um verkefni þar sem tekst að fá unga nemendur til að lesa og skrifa í lifandi námssamfélagi með stuðningi nýrrar tækni.
Á vef bókaormanna býðst kennurum og öðrum áhugasömum að stofna glaðbeitta bókaorma þar sem nemendur skrá lesnar bækur, lýsa efni þeirra og fella um þær dóma. Ormarnir eru öllum opnir til aflestrar og vaxa með hverri lesinni bók. Hægt er að bera saman ýmsar tölur um orma og bekkjarhópa, titla og höfunda eða kalla upp færslur af handahófi til að lesa það sem börn og unglingar hafa fram að færa um einstakar bækur. Einnig má prenta út vinnublöð og myndir til að hengja á veggi í skólum. Í nýrri útgáfu ormanna verður auk fleiri nýjunga hægt að birta á vef og koma fyrir í verkmöppum nemenda textum og myndum eftir unga lesendur um ýmis efni tengd bókum og bóklestri.
(Fréttin er tekin af vefsíðu Háskóla Íslands)
|