Hvað er IBBY?
IBBY er skammstöfun á enska heitinu The International Board on Books for Young People en það eru alþjóðleg samtök. IBBY deildir eru nú í 60 ríkjum víðs vegar um heim.
Stofnandi samtakanna var þýsk kona, Jella Lepman. Hún var fædd í Þýskalandi en dvaldi fram yfr heimsstyrjöldina síðari í Englandi. Þá kom hún til Þýskalands og upplifði hörmungarnar í landinu. Allt menningarlíf var í rúst en sárast sveið henni aðstöðuleysi barna og unglinga. Hún vildi vekja hjá þeim áhuga á bókmenntum og skapa þeim aðstöðu til að njóta þeirra. Hún áleit að góðar barnabækur gætu byggt brú" milli þjóða heims, miðlað fróðleik og þar með skilningi milli ólíkra menningarsamfélaga. Yella Lepman stofnaði bókasafn fyrir börn og unglinga Internationales Jugendbibliothek, í München 1948 og er það safn enn rekið í anda hennar. Í framhaldi af þessu þróaðist hugmynd að stofnun alþjóðasamtaka sem störfuðu í anda Jellu Lepman. Það fólk sem vann að stofnun samtakanna hafði það einnig að leiðarljósi og markmiði að góðar bækukr fyrir börn og unglinga hvar sem væri í heiminum gætu haft veruleg áhrif á uppeldi og menntun ungs fólks.
IBBY - samtökin voru stofnuð í Zürich í Sviss árið 1953 og þar eru enn í dag aðalstöðvar þeirra. Stofnfélagar voru fólk sem unni góðum barnabókum svo sem bókasafnsfræðingar, rithöfundar, kennarar og fleiri. Þess má geta að meðal stofnfélaga var Astrid Lindgren. Samtökin hafa gert fæðingardag H. C Andersens að alþjóðlegum barnabókadegi. Markmið samtakanna eru meðal annars að:
- miðla skilningi milli þjóða heims með barnabókum
- gefa börnum hvar sem er í heiminum tækifæri til að njóta góðra bóka
- kynna og hvetja til útgáfu á framúrskarandi skáldverkum og myndrænum verkum fyrir börn og unglinga
- stuðla að rannsóknum á barnabókmenntum
- veita þeim sem vilja málefnum barnabóka upplýsingar og ráðgjöf
- sameina þá aðila um allan heim, sem vinna að framgangi góðra bóka fyrir börn og unglinga.
Annað hvert ár er haldin alþjóðlegt þing þar sem ákveðið þema er tekið fyrir. Oftar en ekki standa þau í Evrópu og árið 1988 var slíkt þing í Osló og stóðu Norðurlöndin sameiginlega að því. Í útálfunum hafa Bandaríkin, Kanada, Japan og Indland haldið þing og nú í september 2000 verður það haldið í Kolumbíu og standa IBBY deildirnar í Suður-Ameríku fyrir því. Suður-Afríka hélt þingið árið 2004. Á ráðstefnunum eru bóka og myndlistarsýningar, fyrirlestrar fluttir og vinnuhópar starfandi. Verðlaun og viðurkenningar eru veittar og aðalfundur samtakanna haldinn.
Í stjórn samtakanna sitja 12 fulltrúar sem kosnir eru til tveggja ára í senn. Alþjóðasamtökin gefa út tímaritið Bookbird sem kemur nú út þrisvar á ári og flytur margvíslegan fróðleik um barnabækur víðs vegar í heiminum.
IBBY á Íslandi
Íslandsdeild IBBY var stofnuð í Reykjavík árið 1985 og hafði hún það að aðalmarkmiði að stuðla á allan hátt að eflingu íslenskra barnabóka. Í fyrstu var henni gefið heitið Barnabókaráðið - Íslandsdeild IBBY en árið 1998 var því breytt í Börn og bækur - IBBY á Íslandi. Frá upphafi hefur starfið verið fjölþætt. Auk þátttöku í alþjóðlega starfinu og því sem fram fer innanlands er einnig samstarf milli norrænu deildanna sem gefa árlega út sameiginlegt tímarit, Nordisk blad. Fréttabréfið Börn og bækur leit dagsins ljós þegar á fyrsta ári. Það var í A5 umbroti og kom út tvisvar til þrisvar á ári. Haustið 1997 var það stækkað og hlaut nafnið Börn og menning. Það kemur nú út tvisvar á ári.
Íslandsdeildin hefur staðið fyrir margs konar samkomuhaldi í áranna rás: Árlega eru veittar viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar og hefur ærinn fjöldi listamanna og menningarstofnana notið þeirra. Kynningar á nýjum bókum voru lengi vel haldnar í upphafi jólabókavertíðar. Ráðstefnur í Gerðubergi hafa verið árlegur viðburður síðustu árin í samvinnu við Gerðuberg og nokkur félög sem koma á einhvern hátt að barna-og unglingabókum. Bókakaffi hefur verið haldið tvisvar sinnum á hverju ári sl. ár í samvinnu við SÍUNG, samtök barna- og unglingabókahöfunda innan Rithöfundasambandsins. Einnig hefur deildin verið þátttakandi í ýmsum ráðstefnum um barnabækur sem haldnar hafa verið í áranna rás.
Viltu ganga í samtökin?Okkur þykir alltaf vænt um að fá nýja félaga.
Ef þú hefur áhuga á að ganga í okkar hóp, vinsamlegast sendu tölvupóst til Þorbjargar Karlsdóttur (thorbjorg.karlsdottir-hjá-reykjavik.is, sem heldur utan um félagalistann, vs. 563 1717) eða formannsins, Guðlaugar Richter, s. 552-1521. gudlaugri-hjá-simnet.is). Þér er líka velkomið að hringja til þeirra.
|