Aðrar ráðstefnur

Innanlands

  Yfirlit
  Bókakaffi
  Gerðubergs-ráðstefna
  Aðrar ráðstefnur
  Barnabóka-verðlaun
   

Starfsemi IBBY innanlands

IBBY á Íslandi hefur með höndum með líflega starfsemi til eflingar barnabókmenntum og barnamenningu almennt á Íslandi.

Stjórn félagsins hittist mánaðarlega, ræðir ýmis málefni, t.d. efni næsta tímarits, og skipuleggur reglulega atburði eins og afhendingar viðurkenninga og tilnefningar til verðlauna. Þá reynir stjórnin líka að brydda upp á ýmsum nýjungum sem vekja athygli á lestrarvenjum barna og þeirri viðleitni sem ýmis félagasamtök, stofnanir og einstaklingar sýna barnamenningu.

ÚTGÁFA: Lesið um fjölbreytta útgáfu samtakanna hér.

BÓKAKAFFI: Bókakaffi hefur verið haldið tvisvar sinnum á hverju ári sl. ár í samvinnu við SÍUNG, samtök barna- og unglingabókahöfunda innan Rithöfundasambandsins.
»Meira

GERÐUBERGSRÁÐSTEFNA: Ráðstefnur í Gerðubergi hafa verið árlegur viðburður síðustu árin í samvinnu við Gerðuberg og nokkur félög sem koma á einhvern hátt að barna-og unglingabókum.
»Meira

AÐRAR RÁÐSTEFNUR: Einnig hefur deildin verið þátttakandi í ýmsum ráðstefnum um barnabækur sem haldnar hafa verið í áranna rás.
»Meira

BARNABÓKAVERÐLAUN: IBBY á Íslandi skipar einn fulltrúa úr stjórninni til þess að sitja í dómnefnd fyrir Íslensku barnabókaverðlaunin. Á þessari síðu er einnig að finna yfirlit yfir ýmis önnur barnabókaverðlaun og viðurkenningar sem veitt eru á Íslandi.
»Meira

Stjórnin er alltaf opin fyrir fleiri hugmyndum. Sendu okkur tölvupóst ef þú veist af einhverju sem þér finnst að IBBY á Íslandi ætti að sinna.

 

Alþjóðlegu samtökin

Síða alþjóðlegu samtakanna er www.ibby.org.

 

 

IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir