Aðrar ráðstefnur

Innanlands

 
  Bókakaffi
  Gerðubergs-ráðstefna
  Aðrar ráðstefnur
  Barnabóka-verðlaun
   

Gerðubergsráðstefnan

Sá siður hefur haldist undanfarin ár að nokkur félagasamtök standa saman að ráðstefnu sem haldin er árlega, að vori, í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Að ráðstefnunni í Gerðubergi standa SÍUNG (Samband íslenskra barna- og unglingabókahöfunda), IBBY, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Félag skólasafnskennara, Upplýsing, Borgarbókasafn Reykjavíkur og Menningarmiðstöðin Gerðuberg.

Gerðubergsráðstefnan er ætíð haldin á laugardegi til þess að auðvelda útivinnandi fólki að mæta og stendur að jöfnu frá kl. 10:00 - 15:00 með hádegisverðarhléi frá 12:00 - 13:00. Aðgangur er ætíð ókeypis, þar sem félagasamtökin sjá um fyrirlestrana og menningarmiðstöðin býður húsnæðið endurgjaldslaust.

Gerðubergsráðstefnur undanfarinna ára:

10. mars 2007: „Í minningu Astrid Lindgren“
Ráðstefnan var að þessu sinni tileinkuð Astrid Lindgren og framlagi hennar til barnamenningar fyrr og nú. Silja Aðalsteinsdóttir og Sigþrúður Gunnarsdóttir héldu fyrirlestur um líf og rithöfundarferil Astrid Lindgren. Þá tók við „Villta barnið og siðmenningin“ – Katrín Jakobsdóttir hélt fyrirlestur um Línu Langsokk. Síðan hélt Helena Gomér erindi um reynslu sína af því að koma á fót barnamenningarhúsi, Junibacken, og barnamenningardeildinni Rum for Barn, í Menningarmiðstöð Svía í Stokkhólmi. Ragnheiður Gestsdóttir, myndlistarmaður, rithöfundur og talsmaður Samtaka um barnamenningarstofnun á Íslandi var fundarstjóri og leiddi umræður.

18. mars 2006: „Heillandi heimur: Goð, börn og valkyrjur“
Sölvi Sveinsson, sagnfræðingur flutti erindið „Goðafræði í endurvinnslu“. Kristín Ragna Gunnarsdóttir myndskreytir flutti fyrirlesturinn „Upp sé ég koma öðru sinni“ en hún fjallaði um bók hennar og Þórarins Eldjárns „Völuspá“ Loks var kynnt bókin „Heil brú og aðrar sögur. Sögur úr norrænni goðafræði“. Að undirbúningi útgáfu bókarinnar stóð Íslandsdeild IBBY í samstarfi við Eddu og er þetta önnur bókin sem þessir aðilar standa að. Fyrri bókin heitir „Auga Óðins“. Helgi Már Friðgeirsson frá versluninni Nexus kynnti hlutverkaleiki í tengslum við goðafræðina. Fundarstjóri var Einar Ólafsson

12. mars 2005: „Þetta var nú ósvikin saga“
Ráðstefnan var tileinkuð danska rithöfundinum H.C. Andersen en þann 2. apríl voru liðin 200 ár frá fæðingardegi hans. Annette Lassen, doktorsnemi, flutti fyrirlestur sinn á íslensku og ræddi um áhríf norrænna fornbókmennta í elsta riti H.C. Andersen, undir titlinum „Norræn byrjun H.C.Andersen.“ Jónína Óskarsdóttir nefdi sitt erindi „Alltaf sama sagan...?” en í því bar hún saman íslenskar þýðingar á verkum H.C.Andersen og sagði lauslega frá því sem hefur verið að gerast í sambandi við endurritun á ævintýrunum í Danmörku. Erindi Kristínar Unnsteinsdóttur kallaðist „Munnmælaævintýri: rætur þeirra og gildi fyrir börn.”Í erindinu tefldi Kristín saman andstæðum hugmyndum fræðimanna um uppruna sígildra táknmynda í ævintýrum, um gildi ævintýra fyrir born og hvenær þau eru móttækilegust fyrir sögum af þessu tagi. Loks talaði Margrét Tryggvadóttir, en erindið nefndi hún „Andersen á okkar tímum.“ Margrét tengdi erindi sitt umræðu um endurritanir og þýðingar, því það ásamt myndskreytingum er túlkun á upprunalegum texta H.C.Andersens. Fundarstjóri var Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur

27. mars 2004: „Það var barn í salnum..."
Árleg barnabókaráðstefna í Gerðubergi var haldin laugardaginn 27. mars. Ráðstefnan var að þessu sinni tileinkuð leiklistinni undir yfirskriftinni: „Það var barn í salnum...". Ragnheiður Gestsdóttir setti ráðstefnuna, en Jón Hjartarson kynnti fyrirlesarana og stjórnaði umræðum. Silja Aðalsteinsdóttir flutti erindið „Snuðra og Tuðra hitta Gleði-Glaum“sem fjallaði um það sem hún taldi markverðast af leiksýningum fyrir börn á undanförnum árum. Harpa Arnardóttir kallaði sinn fyrirlestur „Veruleika" og færði rök fyrir því að veruleiki mannsins hið ytra og innra væri af honum sjálfur skapaður. Harpa fjallaði um þá krafta og öfl sem kennd eru við sköpun og ímyndun og hvernig nota mætti leiklistina til þessa að hjálpa börnum til að takast á við tilveruna. María Reyndal flutti erindið „Barnalegt leikhús?" en María telur skorta á vitneskju um skoðanir barna á leikritum og hefur gert óformlega en áhugavekjandi skoðanakönnun meðal barna í nokkrum grunnskóla- og leikskólabekkjum. Einnig var frumflutt örleikrit úr leikritasamkeppni sem haldin var meðal SÍUNG-félaga í tilefni af ráðstefnunni. Leikritið „Lýsing“ eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson hlaut heiðurinn. Persónur og leikendur voru: Stórólfur standlampi, leikinn af Guðmundi Ólafssyni og Steingerður borðlampi, leikinn af Sigrúnu Eddu Björnsdóttur.

15. mars 2003: „Grettir Sig. og bara hlær.“
Þema barnabókaráðstefnunnar að þessu sinni var ljóð og vísur fyrir börn. Guðrún Hannesdóttir flutti erindi sem hún nefndi Guð gaf mér eyra“, þar sem hún ræddi um vísnabækur sínar og gamlar vísur. Ragnheiður Gestsdóttir talaði um gamla söngvaleiki undir fyrirsögninni „ Bimmbirimmbirimmbamm “. Þá flutti Ásmundur K. Örnólfsson erindi sem kallaðist „Ríma, píma, líma. - Ljóð, börn og leikskóli.“ Þórarinn Eldjárn flutti erindið: „Börn eru ei vönd að bragsmíði ljóða.“ Einnig las Olga Guðrún Árnadóttir nokkur ljóð og að lokum kynntu Anna Pálína Árnadóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson nýja söngvaleiki undir yfirskriftinni „Einn og tveir og hoppa.“ Jón Karl Helgason stýrði ráðstefnunni.

23. mars 2002: „Út um víðan völl“
Árleg ráðstefna um barna og unglingabókmenntir var haldin í Gerðubergi 23. mars, nú undir yfirskriftinni „Út um víðan völl“ vegna þess hve fyrirlestrarnir komu úr ýmsum áttum en voru hver fyrir sig ákaflega áhugaverðir. Unnur Hjaltadóttir, skólasafnskennari, kallaði sitt erindi „Að fóta sig í fortíðinni“ og Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntafræðingur, flutti erindið „Af hetjum, skrímslum og skattborgurum.“ Að loknu matarhléi talaði Anna Heiða Pálsdóttir, doktor í barnabókmenntum, um fortíðina í erindi sem kallaðist: „Saga og arfleifð: Herferð í barnabókum.“ Að lokum ræddi Rakel Pálsdóttir þjóðfræðingur um hryllingssögur meðal barna og unglinga í erindinu: „Hárin á höfði mér rísa.“ Ráðstefnustjóri var Helgi Guðmundsson

 

 

H. C. Andersen

Ráðstefnan í Gerðubergi árið 2005 var tileinkuð danska rithöfundinum H.C. Andersen en þann 2. apríl 2005 voru liðin 200 ár frá fæðingardegi hans. Hér geturðu skoðað hina dönsku H.C. Andersen síðu.

 

 

IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir