Fundargerðir

Um IBBY

  Hvað er IBBY?
  Saga IBBY á Íslandi
  Fréttasíða
  Stjórnin
  Fundargerðir

Saga IBBY á Íslandi

Íslandsdeild IBBY var stofnuð í Reykjavík árið 1985 og hafði hún það að aðalmarkmiði að stuðla á allan hátt að eflingu íslenskra barnabóka. Í fyrstu var henni gefið heitið Barnabókaráðið - Íslandsdeild IBBY og árið 1998 var því breytt í Börn og bækur - IBBY á Íslandi, en 2003 var ákveðið að kalla félagið einfaldlega IBBY á Íslandi.

Kennitala félagsins er 610685-0219.

Frá upphafi hefur starfið verið fjölþætt. Auk þátttöku í alþjóðlega starfinu og því sem fram fer innanlands er einnig samstarf milli norrænu deildanna sem gefa árlega út sameiginlegt tímarit, Nordisk blad.

Fréttabréfið Börn og bækur leit dagsins ljós þegar á fyrsta ári. Það var í A5 umbroti og kom út tvisvar til þrisvar á ári. Haustið 1997 var það stækkað og hlaut nafnið Börn og menning. Það kemur nú út tvisvar á ári.

Íslandsdeildin hefur staðið fyrir margs konar samkomuhaldi í áranna rás: Árlega eru veittar viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar og hefur ærinn fjöldi listamanna og menningarstofnana notið þeirra. Kynningar á nýjum bókum voru lengi vel haldnar í upphafi jólabókavertíðar.

Ráðstefnur í Gerðubergi hafa verið árlegur viðburður síðustu árin í samvinnu við Gerðuberg og nokkur félög sem koma á einhvern hátt að barna-og unglingabókum. Bókakaffi hefur verið haldið tvisvar sinnum á hverju ári sl. ár í samvinnu við SÍUNG, samtök barna- og unglingabókahöfunda innan Rithöfundasambandsins. Einnig hefur deildin verið þátttakandi í ýmsum ráðstefnum um barnabækur sem haldnar hafa verið í áranna rás.

Viltu ganga í samtökin?

Okkur þykir alltaf vænt um að fá nýja félaga.

Ef þú hefur áhuga á að ganga í okkar hóp, vinsamlegast sendu tölvupóst til Þorbjargar Karlsdóttur (thorbjorg.karlsdottir-hjá-reykjavik.is, sem heldur utan um félagalistann, vs. 563 1717) eða formannsins, Guðlaugar Richter, s. 552-1521. gudlaugri-hjá-simnet.is). Þér er líka velkomið að hringja til þeirra.

Alþjóðlegu samtökin

Síða alþjóðlegu samtakanna er www.ibby.org.

 

 

IBBY á Íslandi - Vefsíðugerð: Anna Heiða Pálsdóttir