Heiðurslisti IBBY-samtakanna
Landsdeildunum gefst tækifæri til að tilnefna á heiðurslista IBBY samtakanna í tengslum við heimsþing alþjóðasamtakanna þrjár bækur og heiðra þannig rithöfund, myndlistarmann og þýðanda.
Heiðurslisti IBBY-samtakanna er víðtækasti og áhrifamesti þátturinn í því starfi IBBY-samtakanna að stuðla að alþjóðlegum skilningi með hjálp barnabóka.
Landsdeildirnar tilnefna sem sagt eina bók í hverjum flokki. Í löndum þar sem fleiri en eitt tungumál eru töluð má tilnefna allt að þrjár bækur fyrir rithöfund og þýðanda á hverju hinna opinberu tungumála.
Mikilvægur þáttur í vali bóka á heiðurslistann er að þær standi fyrir það besta sem barnabókmenntir tilgreinds lands hafa upp á að bjóða og að bókin henti til útgáfu hvar sem er í heiminum. Heiðurslisti IBBY veitir innsýn í hin ólíka menningarlega, stjórnmálalega og þjóðfélagslega bakgrunn sem börn um allan heim lifa og þrífast í, og veitir þeim innsýn sem vinna við að þróa menntun barna og veita þeim „alþjóðlega“ yfirsýn.
Viðurkenningarskjöl vegna heiðurslistans eru afhent á Alþjóðlegu þingi IBBY, þar sem bæklingur með tilnefndum bókum er kynntur í fyrsta sinn. Eftir þessa kynningu fara sjö sett af bókunum á ferðalag um heiminn og eru sýnd á ráðstefnum og alþjóðlegum bókasýningum. Eftir það eru bækurnar geymdar í alþjóðlega barnabókasafninu í München („International Youth Library in Munich“), „Swiss Institute for Child and Youth Media“ í Zurich og „Bibiana Research Collection“ í Bratislava.
Allar landsdeildirnar frá listann sendan í pósti.
Eftirfarandi verk hafa verið tilnefnd af hálfu IBBY á Íslandi:
| 2008 |
| Höfundur |
Sigrún Eldjárn fyrir skáldsögu sína Steinhjartað |
| Myndlistarmaður |
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir myndlistarmaður fyrir bókina Hver étur ísbirni? |
| Þýðandi |
Rúnar Helgi Vignisson fyrir þýðingu á Silfurvæng eftir Kenneth Oppel |
| 2006 |
| Höfundur |
Gunnhildur Hrólfsdóttir fyrir skáldsögu sína Ránið |
| Myndlistarmaður |
Brian Pilkington myndlistarmaður fyrir bókina Dynkur |
| Þýðandi |
Hilmar Hilmarsson fyrir þýðingu á Dóttur ávítarans eftir Lene Kaaberbøl. |
| 2004 |
| Höfundur |
Kristín Steinsdóttir fyrir Engill í Vesturbænum |
| Myndlistarmaður |
Áslaug Jónsdóttir fyrir Krakkakvæði eftir Böðvar Guðmundsson |
| Þýðandi |
Guðni Kolbeinsson fyrir Artemis Fowl |
| 2002 |
| Höfundur |
Þorvaldur Þorsteinsson - Ert þú Blíðfinnur? Ég er með mikilvæg skilaboð. |
| Myndlistarmaður |
Áslaug Jónsdóttir - Sagan af bláa hnettinum |
| Þýðandi |
Sigrún A. Eiríksdóttir - Sannleikann eða áhættuna eftir Annika Thor |
| 2000 |
| Höfundur |
Elías Snæland - Návígi á hvalaslóð |
| Myndlistarmaður |
Sigrún Eldjárn - Málfríður og tölvuskrímslið |
| Þýðandi: |
Kristín Thorlacius - Indíáninn í skápnum eftir Lynn Reid Banks |
| 1998 |
| Höfundur |
Olga Guðrún Árnadóttir - Peð á plánetunni jörð |
| Myndlistarmaður |
Guðrún Hannesdóttir - Risinn þjófótti og skyrfjallið |
| Þýðandi |
Sigrún Árnadóttir - Ég sakna þín eftir Peter Pohl og Kinna Gieth |
| 1992 |
| Höfundur |
Iðunn Steinsdóttir - Gegnum þyrnigerðið |
Sýningar eru settar upp með þeim bókum sem tilnefndar eru til H. C. Andersen verðlaunanna og sömuleiðis heiðurslistabókunum. Þær eru á Barnabókamessunni í Bologna, á Heimsþingi IBBY samtakanna og fara svo yfirleitt sem farandsýningar til fleiri landa. Landsdeildirnar þurfa að greiða allhátt tilnefningagjald með bókunum sem lagðar eru fram og getur það verið litlum deildum töluverð blóðtaka. Á hinn bóginn hefur þetta reynst afbragðskynning og stuðlað að auknum þýðingum og útgáfu viðkomandi bóka í öðrum löndum.
Alþjóðlegi heiðurslistinn
Sjá listann yfir tilnefndar bækur á heiðurslistann 2002 á þessari síðu.
|