Header
Aðrar ráðstefnur

Innanlands

  Yfirlit
  Bókakaffi
  Gerðubergs-ráðstefna
  Aðrar ráðstefnur
  Barnabóka-verðlaun
   

Bókakaffi

IBBY á Íslandi stendur að Bókakaffi tvisvar á ári í samvinnu við SÍUNG, Samtök íslenskra barna- og unglingabókahöfunda. Í öll skiptin hefur verið vel mætt og stundum staðið út úr dyrum.

Bókakaffi undanfarinna ára (fleiri væntanleg á listann):

Bókakaffi 12. október 2007: Þríleikur Guðrúnar Helgadóttur
Í þetta skipti var snúið aftur til Súfistansí bókabúð Máls og menningar á Laugavegi. Ingibjörg Hafliðadóttir, Silja Aðalsteinsdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir og Þórdís Gísladóttir lásu hver sinn kafla úr hinum vinsæla þríleik Guðrúnar Helgadóttur um líf stórrar fjölskyldu í Hafnarfirði á stríðsárunum og fluttu stuttar hugleiðingar sem tengjast efni bókanna. Leikrit byggt á bókunum var á þessum tíma á fjölunum í Þjóðleikhúsinu.

Bókakaffi 16. október 2006: Tilnefningar á Heiðurslista
Ákveðið að tilkynna formlega hverja IBBY tilnefndi á Heiðurslista alþjóðlegu samtakanna er samkoman var haldin í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8. Kunngert var hvaða einstaklingar eru tilnefndir á Heiðurslista IBBY-samtakanna 2006 af Íslands hálfu. Með tilnefningunni fá Heiðurslistahöfundarnir ómetanlegt tækifæri til að koma verkum sínum á framfæri um allan heim og um leið íslenskri barnabókamenningu.
-----Eftirtaldir listamenn vour tilnefndir á heiðurslistann 2006: Gunnhildur Hrólfsdóttir fyrir skáldsögu sína Ránið, Brian Pilkington myndlistarmaður fyrir bókina Dynkur og Hilmar Hilmarsson fyrir þýðingu á Dóttur ávítarans eftir Lene Kaaberbøl. Öllum félögum og velunnurum IBBY á Íslandi var boðið að koma á Bókakaffið og fagna með Heiðurslistafólkinu, þiggja kaffiveitingar og hlýða á erindi Einars Más Guðmundssonar sem hann nefndi Gamli maðurinn og orðin. Í því fjallaði hann um hvernig sögur H.C. Andersens hafa haft áhrif á bækurnar hans.

Bókakaffi 24. febrúar 2005: Lestrarvenjur
Nú var ákveðið að breyta til og reyna nýjan stað, þar sem Súfistinn hefur virst of lítill staður fyrir Bókakaffið. Kaffi Reykjavík varð fyrir valinu og þemað var tileinkað lestrarvenjum Íslendinga. Við fengum til liðs við okkur einstakt fólk sem hefur unnið að markverðum rannsóknum og birt niðurstöður sem eru undirstaða verkefna til að efna lestraráhuga almennings Þorbjörn Broddason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands flutti erindið „Börn og breyttir miðlar” en í því fjallaði hann um lestrarvenjur barna. Að loknum fyrirspurnum til Þorbjarnar steig Elísabet Arnarsdóttir, talmeinafræðingur í pontu og flutti erindið: „Konur fara á bókasöfn og halda dagbók, karlar hanga á Netinu og lesa aldrei leiðbeiningar.“ Smellið hér til að skoða auglýsingu um þetta Bókakaffi.

Bókakaffi haustið 2004: (Féll niður)
Ákveðið var að þar sem einstaklega mikið var af viðburðum og skemmtilegum ráðstefnum tngdum barnamenningu og barnabókum þetta haust (okkur til mikillar gleði) væri það að bera í bakkafullan lækinn að halda Bókakaffi.

Bókakaffi 5. febrúar 2004: Nýjar bækur og lestraráhugi
Bókakaffi var haldið þann 5. febrúar á Súfistanum í Reykjavík. Þar var rætt um íslenskar barnabækur síðasta árs og lestraráhuga barna og unglinga. Barnabókaverðirnir Sigríður Gunnarsdóttir, Seltjarnarnesi, Sigríður Matthíasdóttir, Selfossi, og Þorbjörg Karlsdóttir, Reykjavík, tóku þátt í pallborðsumræðum ásamt Einari Fal Ingólfssyni, myndritstjóra Morgunblaðsins. Guðrún Helgadóttir, rithöfundur stjórnaði umræðunum og tvö börn úr Hlíðaskóla, Steinar Thors og María Dís Gunnarsdóttir, lásu upp úr barnabókum.

Bókakaffi 19. október 2003: Útgáfuhátíð Auga Óðins
Í stað hins hefðbundna haustbókakaffis hélt IBBY á Íslandi hausthátíð í Grófarsal 19. október sl. Á hátíðinni var kunngert hverjir eru tilnefndir af hálfu félagsins á heiðurslista IBBY 2004. Listinn verður lagður fram á heimsþingi IBBY sem haldið verður í Höfðaborg í september næstkomandi. Landsfélög IBBY geta tilnefnt á heiðurslistann annað hvert ár einn rithöfund, einn myndlistarmann og einn þýðanda. Kristín Steinsdóttir rithöfundur var tilnefnd fyrir bók sína Engill í Vesturbænum, Áslaug Jónsdóttir myndlistarmaður fyrir myndskreytingu á Krakkakvæðum eftir Böðvar Guðmundsson og Guðni Kolbeinsson fyrir þýðingu á Artemis Fowl eftir Eoin Colfer.
------Á hátíðinni var einnig kynnt bókin Auga Óðins sem félagið gaf nýlega út í samvinnu við Mál og menningu. Hún hefur að geyma sjö sögur fyrir börn og unglinga sem allar tengjast goðafræði. Sjö höfundar og jafnmargir myndhöfundar lögðu hönd á plóginn en bókin hefur einnig að geyma myndarlegt safn orðskýringa. Nokkrir höfundar og myndlistarmenn lýstu vinnu sinni við tilurð bókarinnar.

Bókakaffi 26. febrúar 2003: Fornsögurnar
26. febrúar 2003 var Bókakaffi á Súfistanum í Reykjavík. Markmiðið var að varpa ljósi á hvernig íslenskir rithöfundar væru að vinna úr fornsögunum okkar um þær mundir. Brynhildur Þórarinsdóttir tók fyrst til máls og sagði frá tilurð bókar sinnar, Njálu sem gefin var út af Máli og menningu haustið 2002. Næst steig í pontu Jóhanna Karlsdóttir og nefndi erindi sitt „Fornsögur færðar í búning fyrir börn“ en þar greindi hún frá vinnu sinni við gerð heildstæðs námsefnis um Leif heppna sem Námsgagnastofnun gaf út.

Bókakaffi 14. nóvember 2002: Lesljós í myrkrinu
Að þessu sinni bar Bókakaffið yfirskriftina Lesljós í myrkrinu og var haldið á Súfistanum 14. nóvember. Þar sem liðið var nærri jólum voru gestir trakteraðir á upplestri úr nokkrum jólabókanna. Auður Jónsdóttir las úr bók sinni Algjört frelsi og Olga Guðrún Árnadóttir las úr bók Guðmundar Ólafssonar, Lísa og galdrakarlinn í Þarnæstu götu. Iðunn Steinsdóttir las kafla úr bók sænsku skáldkonunnar Moni Nilsson-Brannström, Tsatsiki og mútta, í þýðingu Friðriks Erlingssonar, Kristín Thorlacius las úr eigin þýðingu á bókinni Sannleikann eða lífið eftir Celiu Rees, Sigþrúður Gunnarsdóttir las úr Vefnum hennar Karlottu eftir E.B. White í þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur og Vilborg Dagbjartsdóttir las eigin þýðingu úr bókinni Bestu vinir: skemmtilegar sögur um vináttu í ritstjórn Önnu Falk.

Bókakaffi október 2002: Skemmtilegasta bókin mín
Snemma í október 2002 var Bókakaffi á Súfistanum í Reykjavík. Þar ræddu Ármann Jakobsson og Steinunn Jóhannesdóttir um bækurnar sem þeim þóttu skemmtilegastar þegar þau voru krakkar. Miklar og fjörugar umræður urðu að loknum fyrirlestrunum.

Bókakaffi 27. febrúar 2002: Þrjú erindi
Seinna bókakaffi vetrarins 2002-2003 var haldið miðvikudaginn 27. febrúar á Súfistanum. Katrín Jakobsdóttir hóf leikinn og stiklaði á stóru um það sem henni fannst markverðast í barnabókaútgáfu síðasta árs. Nefndi hún tölu sína „Gleði og glaumur en hvar eru öróttu illmennin?“ Næst steig Brynhildur Þórarinsdóttir í pontu og flutti erindið „Vitleysan er viturleg.“ Ekki verður fjölyrt um viðfangsefni Katrínar og Brynhildar hér þar sem bæði erindin eru prentuð í tímaritinu Börn og menning, 1. tbl. 2002. Að loknu stuttu hléi birti Anna Heiða Pálsdóttir gestum sýnishorn af efni doktorsritgerðar sinnar undir yfirskriftinni „Börn vita hluti“ en einnig er fjallað um hana á öðrum stað í þessu blaði.

Bókakaffi 2. október 2001: H.C. Andersen og bókagjöf
Á þessu Bókakaffi í Gunnarshúsi var tilkynnt hvaða bækur yrðu tilnefndar á heiðurslista IBBY samtakanna og til H. C. Andersen verðlaunanna árið 2002. Einnig var Alþjóðahúsinu færð vegleg bókagjöf, 118 bækur talsins. Voru það barnabækur sem höfðu komið út árið 1999 og 2000 og útgefendur gáfu dómnefndum IBBY til að velja úr á heiðurslistann. Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur flutti erindið: Er ævintýrið úti? Um gömul ævintýri í nýjum búningi.

Bókakaffi 6. febrúar 2001: „Bókakaffi að loknu bókaflóði“
Fyrra Bókakaffi ársins 2002 var haldið á Súfistanum þann 6. febrúar undir yfirskriftinni Bókakaffi að loknu bókaflóði. Þar litu Katrín Jakobsdóttir, bókrýnir og Bryndís Jónsdóttir, verslunarstjóri í Penninn/Eymundsson, yfir barnabókaútgáfuna. Þær veltu fyrir sér spurningunni: Hvernig er framboðið á barnabókum? Þá ræddu þær strauma og stefnur í bókaflóðinu og veltu því fyrir sér hvort íslenskar barnabækur færu batnandi. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson flutti höfundapistil.

Bókakaffi 31. október 2000: „Hvernig verður barnabók til?“
Þann 31. október var Bókakaffi á Súfistanum undir yfirskriftinni: Hvernig verður barnabók til? Þar fjölluðu eftirtaldir höfundar um nýjar bækur sínar: Þorvaldur Þorsteinsson, Guðrún Hannesdóttir, Jón Hjartarson, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Yrsa Sigurðardóttir. Höfundarnir svöruðu hver á sinn hátt eftirfarandi spurningum: Hvernig er efnið í bókina mína valið? Fyrir hvern skrifaði ég hana? Á að flokka lesendur eftir aldri og hvernig fer sú hugmyndavinna fram?

Bókakaffi 24. maí 2000: Leikhús fyrir börn
Þetta bókakaffi var haldið á Sólon Íslandus 24. maí. Þar fjölluðu Guðrún Helgadóttir, rithöfundur, Gunnar Helgason leikari og rithöfundur og Pétur Eggerz frá Möguleikhúsinu um leikhús fyrir börn og ýmislegt annað er varðar barnamenningu.

Bókakaffi 27. janúar 2000
Bókakaffi var haldið á Súfistanum á Laugavegi 27. janúar 2000. Þar hélt Andri Snær Magnason fyrirlestur undir heitinu Unglingabækur geta verið stórskaðlegar og Anna Heiða Pálsdóttir ræddi um fyrstu bókina af Harry Potter sem þá var nýkomin út á Íslandi, söguna bak við verkið og efnistök. Á eftir fyrirlestrunum var létt spjall um bæði erindin yfir kaffibollunum. Erindi Andra Snæs var birt í heild í Börn og menning, 1. tbl. 2000.

Bókakaffi 7. október 1999: Fyrsta Bókakaffið
Haustið 1999 ákváðu IBBY og SÍUNG að efna til samkomu sem nefndist Bókakaffi og var það haldið í Gunnarshúsi 7. október 1999. Ætlunin var að skapa almennum félagsmönnum og öðrum áhugamönnum um barnabækur vettvang til að hittast og rabba óformlega um barnabókmenntir. Samkoman hófst með því að tilkynnt var hvaða bækur yrðu tilnefndar á heiðurslista IBBY samtakanna og til H. C. Andersen verðlaunanna árið 2000. Síðan flutti Anna Heiða Pálsdóttir erindið: Hvað er með ásum? Hvað er með álfum? Norræn goðafræði í íslenskum barnabókum. Hún gerði grein fyrir því að merkilega lítið væri um beina notkun á norrænni goðafræði í íslenskum barnabókum andstætt því sem gerðist á hinum Norðurlöndunum og í Englandi og leitaði skýringa á því. Á eftir spunnust líflegar umræður um málið og þótti stjórn IBBY að sannast hefði að svona samkoma ætti rétt á sér.

 

 

Bókakaffi


 

 

IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir