Börn og menning 38. árg. á leið til félaga

Við erum afar stolt af nýjasta tölublaðinu okkar af Börnum og menningu. Ritstóri blaðsins er Erla Elías Völudóttir, grafísk hönnun og umbrot var í höndum Blævar Guðmundsdóttur og teikningin á forsíðunni er eftir Ara H. G. Yates. Ritnefndina skipuðu ásamt ritstjóra þau Katrín Lilja Jónsdóttir, Kristín Nanna Einarsdóttir, María Hjálmtýsdóttir og Sverrir Norland.
Í tímaritinu er að finna bókarýni um átta nýjar barna- og unglingabækur, leikhúsrýni, fræðigreinar, fréttir af starfi IBBY á Íslandi og aðrar fréttir úr barnabóka- og barnamenningarheiminum á Íslandi.

Börn og menning er eina íslenska fagtímaritið sem sérhæfir sig í umfjöllun um barnabókmenntir og barnamenningu. Með því að ganga í félagið tryggir þú þér eintak af tímaritinu sem kemur nú út árlega. Við bjóðum upp á félagaaðild fyrir annars vegar einstaklinga og svo stofnanir og fyrirtæki.