Lestrarhvetjandi veggspjald 2025

Hið árlega lestrarhvetjandi veggspjald IBBY og Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO er nú komið út. 

Frá árinu 2019 hafa IBBY og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO tekið höndum saman um útgáfu veggspjaldsins sem er dreift til allra skólasafna í landinu og barnadeilda almenningsbókasafna.

Listamaður ársins er engin önnur en hin fjölhæfa Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir. Lóa Hlín hefur skrifað bækur fyrir börn eins og Mamma sandkaka, Grísafjörður og myndskreytt bækurnar um Snuðru og Tuðru, svo einhverjar séu nefndar.

IBBY á Íslandi verður 40 ára á árinu og má sjá vísbendingu um það á veggspjaldinu.

Við hvetjum skóla, bókasöfn og einstaklinga sem láta sig málefni barnamenningar varða að ganga í félagið.

Hægt er að skoða eldri veggspjöld hér.

Lestrarhvetjandi veggspjald IBBY 2025, höfundur Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir