Í tilefni dags barnabókarinnar sem haldinn er hátíðlegur ár hvert gefur barnamenningarfélagið IBBY út smásögu til allra barna á Íslandi. Í ár er það Embla Bachman rithöfundur og handhafi Vorvinda IBBY 2024 sem skrifaði smásöguna Þetta reddast … eða hvað? Sagan verður flutt í útvarpinu í þættinum Segðu mér á Rás 1 þann 2. apríl kl. 9:05, söguna verður hægt að finna á vefsíðu IBBY, hér.
Unnur María Sólmundardóttir hefur útbúið námsefni sem er aðgengilegt öllum á vefnum https://kennarinn.is/utvarpssogur-ibby/
Embla Bachman hefur getið sér gott orð á skömmum tíma fyrir skemmtilegar ungmennabækur. Embla hefur gefið út tvær bækur, Stelpur stranglega bannaðar og Kærókeppnin, sem báðar hafið vakið mikla athygli meðal ungmenna og voru þær báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Hugsjón IBBY samtakanna er sú að barnabókmenntir geti stuðlað að auknu umburðarlyndi. Fólk sem les sömu söguna á upp frá lestrinum eitthvað sameiginlegt. Með því að leyfa öllum grunnskólanemum landsins að hlusta samtímis á söguna stíga fjörutíu þúsund nemendur inn í sama heim á sama tíma.
Góða skemmtun!

You must be logged in to post a comment.