Lestrarhvetjandi veggspjald 2026

Hið árlega lestrarhvetjandi veggspjald IBBY og Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO er komið út fyrir árið 2026.

Frá árinu 2019 hafa IBBY og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO tekið höndum saman um útgáfu veggspjaldsins sem er dreift til allra skólasafna í landinu og barnadeilda almenningsbókasafna.

Myndhöfundurinn í ár er Ari H.G. Yates. Ari hefur meðal annars myndlýst hinar vinsælu bækur Skólaslit.

Við hvetjum skóla, bókasöfn og einstaklinga sem láta sig málefni barnamenningar varða að ganga í félagið.

Hægt er að skoða eldri veggspjöld hér.