Samkvæmt venju gefur barnamenningarfélagið IBBY öllum grunnskólabörnum á Íslandi
smásögu í tilefni af degi barnabókarinnar. Í ár er það Hjalti Halldórsson rithöfundur sem
skrifaði smásöguna Hetja dagsins af þessu tilefni. Hann flytur söguna í útvarpinu á Rás 1
miðvikudaginn 8. apríl kl. 9.05 í þættinum Segðu mér. Eftir upplesturinn tekur Sigurlaug
Jónasdóttir viðtal við Hjalta. Söguna verður hægt að finna á vefsíðu IBBY, hér.
Unnur María Sólmundardóttir hefur útbúið námsefni sem er aðgengilegt öllum á
vefnum kennarinn.is
Hjalti Halldórsson hefur getið sér gott orð fyrir skemmtilegar barnabækur. Fyrsta bók
Hjalta, Af hverju ég?, kom út árið 2017 við góðar viðtökur. Hann hefur gefið út fjölmargar
bækur síðan og má þar nefna bækurnar Ofurhetjan, Gestur úr geimnum og Bannað að vekja
Grýlu. Sumar bækur Hjalta eru innblásnar af Íslendingasögum og hann stýrir einnig
hlaðvarpinu Ormstungur þar sem farið er yfir Íslendingasögurnar á mannamáli.
Hugsjón IBBY samtakanna er sú að barnabókmenntir geti stuðlað að auknu
umburðarlyndi. Fólk sem les sömu söguna á upp frá lestrinum eitthvað sameiginlegt.
Með því að leyfa öllum grunnskólanemum landsins að hlusta samtímis á söguna
stíga fjörutíu þúsund nemendur inn í sama heim á sama tíma.
Góða skemmtun!

You must be logged in to post a comment.