
IBBY á Íslandi gefur út tímaritið Börn og menning, eina íslenska fagtímaritið sem sérhæfir sig í umfjöllun um barnabókmenntir og barnamenningu. Ritstjóri blaðsins er Erla Elíasdóttir Völudóttir.
Tilgangur tímaritsins er að auka veg barnamenningar og barnabókmennta á Íslandi. Því er ætlað að fjalla um það helsta sem er að gerast á sviði barnamenningar og kynna nýjar og eldri bókmenntir. Þar er m.a. að finna yfirgripsmikla barna- unglingabókarýni, fræðilega umfjöllun um barnabækur, viðtöl við barnabókahöfunda og aðra sem láta sig menningu barna varða. Þá er fjallað um leikrit, kvikmyndir og ýmsar uppákomur fyrir börn. Sem málgagn IBBY á Íslandi er því einnig ætlað að kynna það sem er á döfinni hjá IBBY, bæði innanlands og utan.
Ef þú hefur áhuga á að gerast félagsmaður í IBBY á Íslandi og gerast áskrifandi að blaðinu þá má finna nánari upplýsingar hér.
Ef óskað er eftir eldri eintökum, vinsamlegast hafið samband við ritstjóra, Erlu Elíasdóttur Völudóttur, bornogmenning(hjá)gmail.com.
You must be logged in to post a comment.