Smásagan Stjarnan í Óríon er skrifuð fyrir lesendur frá sex ára aldri. Sagan verður frumflutt á Rás I kl. 9:10 fimmtudaginn 30. mars, en hún er samin að beiðni IBBY á Íslandi til að fagna degi barnabókarinnar. Sagan er færð öllum grunnskólanemendum á Íslandi að gjöf og við hvetjum skólana til að taka þátt í stærstu sögustund á landinu, annað hvort með því að hlusta á söguna í útvarpinu eða með því að lesa hana upp.
Hægt er að sækja söguna með því að smella hér.
Vefkefnapakkar um söguna eru fáanlegir endurgjaldslaust á vef námsefnisveitunnar 123skóli.is.
Starfsfólk skólanna er minnt á að sagan er trúnaðarmál fram að frumflutningi hennar og eru kennarar beðnir um að dreifa henni ekki.