Í Gerðubergi hefur verið haldin árlega frá árinu 1998 ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir. Að ráðstefnunni standa eftirfarandi félög og stofnanir; IBBY á Íslandi, Borgarbókasafnið, Rithöfundasamband Íslands, skóla- og frístundasvið Reykjavíkur, Félag fagfólks á skólasöfnum og Upplýsing.
Gerðubergsráðstefnan er haldin á laugardegi og stendur að öllu jöfnu frá kl. 10:30 – 14:30 með hádegisverðarhléi þar sem gestum gefst kostur að kaupa hádegisverð á veitingahúsinu í Gerðubergi.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!
Ráðstefnan 2024
Ráðstefnan í ár verður í Bókasafni Kópavogs vegna framkvæmda á salnum í Gerðubergi og verður hún haldin laugardaginn 28. september kl. 10:30-13:45

Fyrri ráðstefnur
2023 – Allskonar fjölskyldur
2022 – Allskonar öðruvísi
2021 – Fjársjóðsleit fjölskyldunnar – lestur sem sameiginleg upplifun
2020 – Vá – Bækur, lesendur þeirra og allt hið voðalega í heiminum
2019 – Þetta er bara barnabók
2018 – Í hvaða bók á ég heima?
2017 – Hvað er hún margar blaðsíður? #unglingarlesa
2016 – Nesti og nýjir skór
2015 – Hversdagshetjur á köldum klaka
2014 – Kveikjum elda
2013 – Framtíðarbókin
2012 – Fyrir augum hinna yngstu
2011 – Púkar og prinsessur
2010 – Úr grárri forneskju í glansandi bók
2009 – Bókaormaeldi
2008 – Unglingabókin – meira en brjóst og bólur?
2007 – Húmor og hugrekki – í minningu Astrid Lindgren
2006 – Heillandi heimur – goð, börn og valkyrjur
2005 – H. C. Andersen – í minningu 200 ára afmælis H. C. Andersen
2004 – Það var barn í salnum – leiklist fyrir börn
2003 – Grettir Sig. og bara hlær… – ljóð fyrir börn
2002 – Út um víðan völl
2001 – Pabbi, mamma, barn og bók
2000 – Goðsögur, galdrar og fantasía í barna og unglingabókmenntum
1999 – Í sagnaheimi
1998 – Tálbeita, ljóðlist og afturgöngur
You must be logged in to post a comment.