
Í tilefni dags barnabókarinnar sem haldinn er hátíðlegur ár hvert gefur barnamenningarfélagið IBBY út smásögu til allra barna á Íslandi.
Hjalti Halldórs rithöfundur og kennari skrifaði smásöguna Hetja dagsins sem birtist í apríl 2026 og lesin var upp í þættinum Segðu mér á Rás 1.
Unnur María Sólmundardóttir hefur útbúið námsefni sem er aðgengilegt öllum á vefnum kennarinn.is.
Hjalti Halldórsson hefur getið sér gott orð fyrir skemmtilegar barnabækur. Fyrsta bók Hjalta, Af hverju ég?, kom út árið 2017 við góðar viðtökur. Hann hefur gefið út fjölmargar bækur síðan og má þar nefna bækurnar Ofurhetjan, Gestur úr geimnum og Bannað að vekja Grýlu. Sumar bækur Hjalta eru innblásnar af Íslendingasögum og hann stýrir einnig hlaðvarpinu Ormstungur þar sem farið er yfir Íslendingasögurnar á mannamáli.
Söguna er hægt að sækja á pdf eða lesa hér að neðan: