Fimmtudaginn 8. apríl 2021 verður smásagan Svartholið eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur frumflutt í tilefni af degi barnabókarinnar. IBBY á Íslandi hefur síðastliðin ellefu ár fagnað deginum með því að færa grunnskólabörnum á Íslandi smásögu að gjöf.
Sagan Svartholið er flutt á Rás 1 svo að öll þjóðin geti lagt við hlustir. Kristín Ragna verður gestur Sigurlaugar M. Jónasdóttur í þættinum Segðu mér fimmtudaginn 8. apríl og sagan verður jafnframt flutt í þættinum. Lestur sögunnar hefst kl. 9.05. Sagan verður aðgengileg á vef RÚV eftir frumflutninginn.
Kristín Ragna Gunnarsdóttir lærði grafíska hönnun við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og er með BA-próf í almennri bókmenntafræði og ritlist og MA-próf í ritlist frá Háskóla Íslands. Kristín Ragna hefur skrifað tíu bækur fyrir börn og er meðhöfundur þriggja bóka. Auk þess hefur hún myndlýst ótal bækur og hannað bókatengda myndrefla (njalurefill.is), frímerki og sýningar.
Hugsjón IBBY samtakanna er sú að barnabókmenntir geti stuðlað að auknu umburðarlyndi. Fólk sem les eða hlustar á sömu söguna á upp frá lestrinum eitthvað sameiginlegt. Með því að leyfa öllum grunnskólanemum landsins að hlusta samtímis á söguna stíga fjörutíu þúsund nemendur inn í sama heim á sama tíma.
Hér er hægt að smella til að sækja söguna á pdf formi: Svartholið eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur
Kristjana Friðbjörnsdóttir hjá 123skoli bjó til kennsluefni með sögunni sem er aðgengilegt hér endurgjaldslaust: Kennsluefni með sögunni Svartholið.
Starfsfólk skóla er minnt á að sagan er trúnaðarmál fram að frumflutningi hennar og er vinsamlegast beðið um að dreifa henni ekki utan skólanna.
You must be logged in to post a comment.