Kæru félagar í IBBY á Íslandi,
Stjórn IBBY á Íslandi hóf störf í september. Á döfinni eru mörg og skemmtileg verkefni. IBBY mun dreifa veggspjaldi á öll bókasöfn landsins í samstrafi við Bókmenntaborgina eins og síðustu ár, einnig verður lesin upp frumsamin smásaga eftir þjóðþekktan barnabókahöfund á Rás 1 í kringum dag barnabókarinnar í apríl. Helsta verkefni okkar er að vekja athygli á barnamenningu og -bókmenntum sem víðast.
Síðasta starfsár var róðurinn þyngri en venjulega. Félagið hefur reitt sig á styrki ásamt félagsgjöldum til að geta haft starfið sem blómlegast og verkefnin sem flest. Á síðasta starfsári má segja að rekstur félagsins hafi siglt í strand og það var okkur mikið reiðarslag að geta ekki staðið að útgáfu okkar góða tímarits Börn og menning. Útgáfa tímaritsins hefur verið helsti kostnaðarliður í rekstri félagsins og þegar ekki fengust þeir styrkir sem sótt var um þurftum við í stjórninni að setjast niður og velta fyrir okkur hvað væri best fyrir félagið.
Ákveðið var að líta á ástandið sem tækifæri til að taka til í rekstri félagsins og leggja meiri ástúð í eitt tölublað á ári og gera það sem veglegast. Við áætlum að gefa tímaritið út einu sinni á ári hér eftir, í upphafi hvers árs. Nýtt blað er því væntanlegt á nýju ári, árið 2024. Þannig verður félagið sjálfbærara og ekki eins háð utanaðkomandi styrkjum. Ósk okkar er að efla útgáfuna enn meira og nýr ritstjóri, Erla Elíasar- Völudóttir, mun stýra nýju riti styrkri hendi. Helsta markmið félagsins er að vekja athygli á barnamenningu sem víðast. Einnig stefnir stjórn á að koma því á vefinn bornogmenning.is þar sem við deilum eldri og nýrri greinum. Áætlað er að fagna þeirri útgáfu með pompi og pragt á vordögum.
Stjórn IBBY á Íslandi