Dagur barnabókarinnar 2016

Smásagan Andvaka eftir Birgittu Elínu Hassell og Mörtu Hlín Magnadóttur er hugsuð fyrir lesendur frá sex ára aldri. Sagan verður frumflutt á Rás I kl. 9:10 þriðjudaginn 5. apríl, en hún er samin að beiðni IBBY á Íslandi til að fagna degi barnabókarinnar. Sagan er færð öllum grunnskólanemendum á Íslandi að gjöf og við hvetjum skólana til að taka þátt í stærstu sögustund á landinu.

Hægt er að sækja söguna með því að smella hér.

Vefkefnapakkar um söguna eru fáanlegir endurgjaldslaust á vef námsefnisveitunnar 123skóli.is.