Vorvindar IBBY

Í dag voru í Gunnarshúsi afhentar Vorvindaviðurkenningar IBBY á Íslandi við hátíðlega athöfn.  Fjórar viðurkenningar voru veittar að þessu sinni fyrir störf að barnamenningu.

Viðurkenningarnar hlutu:

  • Kúlan – barnaleikhús. Í Þjóðleikhúsinu fer fram metnaðarfullt starf á leiksviðinu Kúlunni, en þar hafa verið sýndar fjölmargar sýningar fyrir yngstu leikhúsgestina og leikskólabörnum boðið í heimsókn að kynnast leikhúsinu.
  • Gunnar Helgason hefur unnið mikið starf fyrir börn á sviðum leik-, söng- og ritlistar. Nýjustu bækur hans, Víti í Vestmannaeyjum og Aukaspyrna á Akureyri eru skrifaðar af næmni og kímni og gleðja lesendahóp sem ekki á alltaf auðvelt með að finna lesefni við sitt hæfi.
  • Kristjana Friðbjörnsdóttir hefur skrifað sex barnabækur, þrjár um spæjarann Fjóla Fífils og þrjár um hina óforbetranlegu Ólafíu Arndísi, sem segir á hreinskilinn og einlægan hátt frá ævintýrum hversdagsins. Sögurnar eru bráðfyndnar og skemmtilegar og hitta beint í mark hjá lesendum.
  • Birgitta Sif er nýliðinn í hópnum, en hennar fyrsta bók, Ólíver, kom út hjá Walker bókaútgáfunni í Bretlandi um svipað leyti og bókin kom út hérlendis. Birgitta skrifar söguna og teiknar hana um leið. Söguheimurinn er fjölbreyttur og lifandi og boðskapurinn hlýr og fallegur.

Vorvindar lógó

Vorvindaviðurkenningar IBBY hafa verið afhentar árlega frá árinu 1987 og eiga þær að vekja athygli á þeim fersku vindum sem blása í barnamenningunni hverju sinni.

vorvindar2013

Frá vinstri: Sigþrúður Gunnarsdóttir, þýðandi Ólívers, sem tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd Birgittu Sifjar, Þórhallur Sigurðsson, listrænn stjórnandi Kúlunnar, Tinna Gunnlaugsdóttir, Þjóðleikhússtjóri, Kristjana Friðbjörnsdóttir og Gunnar Helgason rithöfundar. Myndina tók Áslaug Jónsdóttir.