IBBYBarnabókmenntasamtökin IBBY á Íslandi hafa valið þrjár bækur á Heiðurslista alþjóðlegu IBBY samtakanna. Heiðurslistinn er birtur annað hvert ár og fá bækurnar á honum mikla alþjóðlega kynningu, bæði á heimsþingi IBBY sem næst verður haldið í Lundúnaborg í september 2012 og á farandsýningu bóka sem ferðast um allan heim í tvö ár.
- Í flokki frumsaminna skáldverka var tilnefnd bókin Þankaganga – Myslobieg eftir Völu Þórsdóttur og Agnieszku Nowak.
- Í flokki myndabóka var tilnefnd bókin Arngrímur apaskott og hrafninn eftir Kristínu Arngrímsdóttur.
- Í flokki þýðinga var tilnefnd bókin Húsið á bangsahorni eftir A. A. Milne í þýðingu Guðmundar Andra Thorssonar.
You must be logged in to post a comment.