Vorvindar IBBY 2026

Laugardaginn 9. maí veitti Íslandsdeild IBBY sínar árlegu viðurkenningar fyrir framlög til barnamenningar, Vorvinda, við athöfn í Borgarbókasafninu Grófinni. Vorvindum er ætlað að vekja athygli á verkum og starfsemi sem hleypir ferskum og endurnærandi vindum inn í íslenska barnamenningu og því sem vel er gert innan barnamenningar.

Það eru þær Sesslía Ólafs, Þórey Mjallhvít Heiðardóttir Ómarsdóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir. Við óskum Vorvindahöfum innilega til hamingju, þökkum þeim kærlega fyrir sitt framlag og vonum að Vorvindarnir verði þeim hvatning til frekari verka á sviði barnamenningar. Hér að neðan má lesa afhendingaræður sem voru lesnar við athöfnina.

Vorvindar lógó

Sesselía Ólafs

Sesselía Ólafs er fædd og uppalin á Akureyri og á djúpar rætur bæði í Eyjafirði og í Reykjavík. Hún býr á Akureyri með fjölskyldu sinni og er fjölhæfur listamaður sem hefur lengi starfað á mörkum leiklistar, kvikmyndagerðar, tónlistar og ritlistar.

Sesselía lauk námi í leiklist og leikstjórn í London árið 2012 og hefur síðan þá leikið og leikstýrt bæði hérlendis og erlendis, á sviði sem og í kvikmyndum. Hún hefur einnig lokið BA gráðu í ensku og verið afar virk í sjálfstæðu sviðslistalífi. Hún er einn stofnenda gríndúettsins Vandræðaskálda og leikhópsins Umskiptinga, en hún hefur skrifað fjölmörg þeirra verka sem leikhópurinn hefur sett upp, fyrir bæði fullorðna og börn.

Árið 2023 var Sesselía valin bæjarlistamaður Akureyrar og í kjölfarið hóf hún markvissa vinnu við skáldsöguna Silfurberg. Bókin er fyrsta verkið í fyrirhuguðum fjórleik og markar jafnframt frumraun hennar í skáldsagnagerð fyrir börn og ungmenni. Silfurberg var síðar tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hefur vakið athygli fyrir metnaðarfullan söguheim, sterka byggingu og skýra frásagnarrödd.

Sagan segir frá Berglindi sem óvænt stígur inn í Álfheima þar sem átök geisa á milli ljósálfa og svartálfa og örlög bæði mannheima og yfirnáttúrulegra heima eru í húfi. Í verkinu blandar Sesselía íslenskum þjóðsagnaarfi og frumefnum náttúrunnar og fléttar það saman svo úr verður áhugavert verk sem sýnir skýrt hvernig bakgrunnur höfundar í sviðslistum skilar sér í lifandi persónum og sjónrænni frásögn.

Með Silfurbergi hefur Sesselía Ólafs stigið inn á bókmenntasviðið af festu. Hún hlýtur Vorvinda IBBY fyrir þetta sterka frumverk sem sameinar frásagnargleði, menningararf og framtíðarsýn. Við hlökkum til að lesa meira um sögu Berglindar og Álfheima. Því miður er Sesselía stödd erlendis og gat því ekki verið viðstödd í dag, en systir hennar Ásta Karen Ólafsdóttir taka við viðurkenningunni fyrir hennar hönd.

Þórey Mjallhvít Heiðardóttir Ómarsdóttir

Þórey Mjallhvít Heiðardóttir Ómarsdóttir er íslenskur teiknari, teiknimyndagerðarmaður, leikstjóri og rithöfundur búsett í Reykjavík. Hún er myndlistakennari í Fjölbrautaskólanum við Ármúla á nýsköpun- og listabraut og er þekkt fyrir að skapa teiknimyndaseríuna Ormhildarsögu sem byggir á hennar eigin teiknimyndasögu. Hún er með B.A. gráðu í teiknimyndagerð frá Suður-Wales og M.A. gráðu í ritlist  frá Háskóla Íslands.

Þórey starfaði í teiknimyndaiðnaðinum í Cardiff og meðal verkefna hennar eru teiknimyndir fyrir ýmsar stuttmyndir eins og Man Pain, Mitt hefur nef og Skrímslabaninn sem einnig hlaut Edduverðlaunin 2021 fyrir barna- og unglingaefni ársins. Hún leiðir einnig skapandi vinnustofur fyrir börn, kennir þeim teikingu, karakterhönnun og myndasögugerð.

Í dag starfar Þórey einnig sem sjálfstætt starfandi listamaður, þar sem hún einbeitir sér að bóka- og handritaskrifum, teiknimyndagerð og myndskreytingum fyrir ýmsa viðskiptavini.

Nýlega voru birtir teiknimyndaþættir á RÚV úr bókunum um Ormhildarsögu sem hafa notið mikilla vinsælda. Ormhildarsaga gerist á Íslandi í framtíðinni þar sem jöklar hafa bráðnað og goðsagnaverur hafa snúið aftur. Þórey er bæði leikstjóri og höfundur seríunnar en hún hefur einnig samið bækur um sama efni,  td. myndasöguna Ormhildarsaga og Ormhildur og jólaruddarnir.

Ormhildarsaga er bæði vönduð og frumleg myndasaga en það sem gerir söguna einstaka er að í henni fáum við að sjá íslenskt umhverfi í alveg nýrri mynd. Jöklar hafa bráðnað og flæðamálið hækkað svo nú er Breiðholt til dæmis kallað Breiðholtseyja. Sagan er vönduð, frumleg og spennandi. Teiknimyndaþættirnir eru að sama skapi metnaðarfullt verkefni þar sem um er að ræða 26 þætti og hver þáttur er 22 mín. Sagan inniheldur fjöldann allan af íslenskum kynjaverum og kynnir þær þannig fyrir nýjum kynslóðum, hér má td nefna nátttröll, dverga, múshval og nykur. Loks eru aðalhetjurnar hópur af fjölbreyttum kvenskörungum með sína ólíku styrkleika.

Við bíðum spennt eftir að fylgjast með Ormhildi og hennar ævintýrum í framtíðinni.

Bókmenntahátíð barnanna

IBBY á Íslandi veitir verkefninu Bókmenntahátíð barnanna Vorvindaviðurkenningu fyrir framlag sitt til barnamenningar.

Bókmenntahátíð barnanna er verkefni sem Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir stóðu að á Norðurlandi í samstarfi við Hrafnagilsskóla, Stórutjarnaskóla, Valsárskóla og Reykjahlíðarskóla. Unnið var með börnum í 5. – 8. bekk. Nemendur sömdu sögur, hönnuðu og útbjuggu bækur, myndlýstu, settu upp og stofnuðu bókaforlög. Berglind Erna og Þórunn Rakel heimsóttu skólana í hverjum mánuði og unnu með hverju barni fyrir sig. Kennarar barnanna unnu náið með þeim í verkefninu á milli heimsókna og því lauk með bókmenntahátíð sem fór fram á Hrafnagili. Þar kynntu og seldu nemendur verk sín, lásu upp úr þeim og fögnuðu saman. Ágóðinn af bókasölunni var nýttur til að styrkja gott málefni ásamt því að kaupa bækur og spil fyrir nemendur til að njóta.

Verkefnið fór fram haustið 2025 og var styrkt af Sprotasjóði.

Berglind Erna og Þórunn Rakel kynntust í ritlistarnámi við Háskóla Íslands árið 2020 og hafa unnið að því að gera íslenskukennslu spennandi og skemmtilega með ýmsum óhefðbundnum leiðum síðan árið 2022. Má þar nefna sameiginlegt lokaverkefni þeirra í ritlist við Háskóla Íslands, samtals 25 smásögur sem samdar voru á grunni námsorðaforða. Einnig má nefna svokallaðar leikskólasögur sem henta bæði foreldrum leikskólabarna af erlendum uppruna sem og þeim starfsmönnum sem starfa á íslenskum leikskólum og eru að læra íslensku sem annað mál.

Með Bókmenntahátíð barnanna hafa þær Berglind Erna og Þórunn Rakel kynnt nemendum fyrir hvaða vinna á sér stað á bakvið hverja bók og gefið þeim tækifæri til að takast á við þau verkefni sem og að njóta þess ávinnings sem slík vinna býður uppá. Bókamenntahátíð barnanna hefur skapað frjóan jarðveg fyrir rithöfunda framtíðarinnar.