Aðalfundur IBBY á Íslandi var haldinn þriðjudaginn 12. maí kl. 17:00 í Gunnarshúsi við Dyngjuveg.
Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf en einnig fór fram kosning stjórnar. Úr stjórn gekk Kristín Björg Sigurvinsdóttir. Ásrún Magnúsdóttir bauð sig fram til stjórnar og var kosin samhljóða. Anna Magnúsdóttir Eirúnardóttir var kosin í stöðu formanns, Jónella Sigurjónsdóttir var kosin í stöðu gjaldkera og Eyrún Ósk Jónsdóttir var kosin í stöðu varaformanns. Einnig lét Erla Elíasdóttir Völudóttir af störfum sem ritstjóri blaðsins Börn og menning.
Aðalfundurinn var síðasti fundur fyrir sumarið en stjórn IBBY hefur aftur störf í september.