Gunnar Helgason ætlar að láta 40.000 grunnskólabörn skella uppúr í risastórri sögustund fimmtudaginn 9. apríl. IBBY á Íslandi fagnar degi barnabókarinnar, sem í ár bar upp á skírdag, með því að færa íslenskum börnum nýja smásögu að gjöf. Er þetta í fimmta sinn sem haldið er upp á daginn með þessum hætti. Sagan verður flutt … Lesa meira
Vorvindar 2014
Í dag voru í Gunnarshúsi afhentar Vorvindaviðurkenningar IBBY á Íslandi. Fjórar viðurkenningar voru veittar að þessu sinni fyrir störf að barnamenningu. Viðurkenningarnar hlutu: • Elsa Nielsen og Jóna Valborg Árnadóttir. Brosbókin er fyrsta bók höfunda og fjallar um hversdagslegt vandamál sem varðar þó okkur öll – að fara í fýlu. Samstarf texta- og myndhöfundar er … Lesa meira
Aðalfundur IBBY 2014
Aðalfundur IBBY á Íslandi verður haldinn miðvikudaginn 28. maí kl. 17:30 í Gunnarshúsi við Dyngjuveg. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kosning stjórnar og önnur mál.