Aðalfundarboð

Aðalfundur IBBY á Íslandi verður haldinn fimmtudaginn 31. maí kl. 18 í húsi Rithöfundarsambandsins, Gunnarshúsi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörfÖnnur mál

Bókabrellur og bollakökur í Foldasafni

Bókabrellur og bollakökur í Foldasafni

IBBY á Íslandi tekur þátt í Barnamenningarhátíð í Reykjavík með því að opna bókakaffihús í Foldasafni, laugardaginn 21. apríl klukkan 13-14. Hressum krökkum er boðið til bollakökuáts og bókaspjalls ásamt rithöfundunum góðkunnu Margréti Örnólfsdóttur og Þorgrími Þráinssyni. Allir velkomnir!

Dagur barnabókarinnar – Eins og í sögu

Fimmtudaginn 29. mars hyggst IBBY á Íslandi færa þjóðinni smásögu að gjöf til að fagna degi barnabókarinnar. Sagan Eins og í sögu eftir Ragnheiði Gestsdóttur verður lesin upphátt fyrir alla grunnskólanema á landinu í einu, klukkan 9:45. Sögunni verður útvarpað á Rás I á þeirri sömu stundu í flutningi höfundar. Eins og í sögu fjallar … Lesa meira