Börn og menning á leiðinni til áskrifenda

Forsida haustblaðs Barna og menningarHausthefti Barna og menningar er komið út en blaðið er í þetta sinn mikið bóka- og lestrarblað. Í því má finna greinar um nýjar og nýlegar bækur eins og grein Ernu Erlingsdóttur um hinn gífurlega vinsæla bókaflokk Hungurleikana og gagnrýni Hjörvars Péturssonar um glænýja bók Þórdísar Gísladóttur, Randalín og Mundi. Í blaðinu er einnig að finna skemmtilegt viðtal við einn þekktasta myndabókahöfund Evrópu, Juttu Bauer. Jutta var á landinu í boði Mýrarhátíðarinnar og ræddi Helga Ferdinandsdóttir við hana um um ferilinn, myndabækur og listina. Brynhildur Þórarinsdóttir fjallar í blaðinu um það sem hefur áorkast á fyrstu mánuðunum í starfsemi Barnabókaseturs á Akureyri og Sölvi Björn Sigurðsson veltir vöngum um barnabækur og fortíðarþrá.

Ritstjóri Barna og menningar er Helga Ferdinandsdóttir.

Tímaritið Börn og menning er gefið út af IBBY-samtökunum á Íslandi tvisvar á ári. Hægt er að gerast félagi í samtökunum og jafnframt áskrifandi að blaðinu hér á síðunni eða með því að senda póst á <bornogmenning@gmail.com. Börn og menning er einnig selt í lausasölu í bókaverslun Máls og menningar að Laugavegi 18 og í Bóksölu stúdenta.