Félagið hefur tilnefnt verk þriggja einstaklinga á heiðurslista alþjóðlegu IBBY samtakanna, en hver landsdeild samtakanna tilnefnir einn rithöfund, einn myndhöfund og einn þýðanda. Heiðurslistinn er birtur annað hvert ár og fá bækurnar á honum mikla alþjóðlega kynningu, bæði á heimsþingi IBBY sem næst verður haldið í ágúst 2016 í Auckland, Nýja-Sjálandi, og á farandsýningu bóka sem ferðast um allan heim í tvö ár.
- Ármann Jakobsson er tilnefndur fyrir Síðasta galdrameistarann.
- Áslaug Jónsdóttir er tilnefnd fyrir Skrímslakisa.
- Magnea J. Matthíasdóttir er tilnefnd fyrir þýðinguna á Afbrigði eftir Veronicu Roth.
You must be logged in to post a comment.