Aðalfundur IBBY 2014

Aðalfundur IBBY á Íslandi verður haldinn miðvikudaginn 28. maí kl. 17:30 í Gunnarshúsi við Dyngjuveg. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kosning stjórnar og önnur mál.

Áslaug Jónsdóttir og Kristín Helga Gunnarsdóttir tilnefndar til Astrid Lindgren-verðlaunanna

Áslaug Jónsdóttir og Kristín Helga Gunnarsdóttir tilnefndar til Astrid Lindgren-verðlaunanna

IBBY á Íslandi, Upplýsing og Rithöfundasamband Íslands hafa tekið sig saman um að tilnefna Áslaugu Jónsdóttur og Kristínu Helgu Gunnarsdóttur til Bókmenntaverðlauna Astridar Lindgren 2015. Verðlaunin voru stofnuð í minningu Astridar Lindgren árið 2002 og árlega eru tilnefndir fjölmargir höfundar frá öllum heimshornum. Kristín Helga og Áslaug hafa báðar sent frá sér fjölda bóka og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir … Lesa meira

Dagur barnabókarinnar, 2 apríl 2014

Dagur barnabókarinnar, 2 apríl 2014

Fjórða árið í röð býður IBBY á Íslandi til stærstu sögustundar á landinu til þess að fagna alþjóðadegi barnabókarinnar sem er 2. apríl. Við höfum í ár fengið listaskáldið Þórarin Eldjárn til þess að semja smásögu ætlaða nemendum á öllum stigum grunnskólans, en Þórarinn fékk í fyrra Sögusteinsverðlaun IBBY á Íslandi. Hugmyndin er sú að … Lesa meira