Heiðurslisti IBBY 2014

Heiðurslisti IBBY 2014

Íslandsdeild IBBY hefur nú tilnefnt þrjá einstaklinga á Heiðurslista alþjóðlegu IBBY samtakanna. Heiðurslistinn er birtur annað hvert ár og fá bækurnar á honum mikla alþjóðlega kynningu, bæði á heimsþingi IBBY sem næst verður haldið í Mexíkóborg í september 2014, og á farandsýningu bóka sem ferðast um allan heim í tvö ár. Tilnefnir hver IBBY-deild einn … Lesa meira

Börn og menning

Börn og menning

Vorhefti Barna og menningar er nú komið út en norski rithöfundurinn Thorbjørn Egner er meginþema blaðsins en hann hefði orðið 100 ára á síðasta ári. Dagný Kristjánsdóttir fjallar um Egner og afkvæmi hans í greininni Thorbjørn Egner og þýðendur hans. Helga Birgisdóttir rekur tilurð og sögu Karíusar og Baktusar en Sigurður H. Pálsson sá uppfærslu … Lesa meira

Vorvindar IBBY

Vorvindar IBBY

Í dag voru í Gunnarshúsi afhentar Vorvindaviðurkenningar IBBY á Íslandi við hátíðlega athöfn.  Fjórar viðurkenningar voru veittar að þessu sinni fyrir störf að barnamenningu. Viðurkenningarnar hlutu: Kúlan – barnaleikhús. Í Þjóðleikhúsinu fer fram metnaðarfullt starf á leiksviðinu Kúlunni, en þar hafa verið sýndar fjölmargar sýningar fyrir yngstu leikhúsgestina og leikskólabörnum boðið í heimsókn að kynnast … Lesa meira