Laugardaginn 9. mars kl. 10.30 – 13.30 er hin árlega barna- og unglingabókaráðstefna í Gerðubergi. Umræðuefnið er Framtíðarbókin og rætt verður um það hvernig hvernig bækur og lestur þróast í samtíma okkar og framtíð. Aðgangur er ókeypis.
Íslensku barnabókaverðlaunin 2012
7. nóvember voru Íslensku barnabókaverðlaunin afhent í Austurbæjarskóla við hátíðlega athöfn. Verðlaunabókin er Hrafnsauga eftir þá Kjartan Yngva Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson og er þetta þeirra fyrsta bók. Handrit Kjartans og Snæbjörns var valið úr 63 handritum sem bárust í samkeppnina. Að verðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, barnavinafélagið Sumargjöf, Ibby á Íslandi og Forlagið.
Börn og menning á leiðinni til áskrifenda
Hausthefti Barna og menningar er komið út en blaðið er í þetta sinn mikið bóka- og lestrarblað. Í því má finna greinar um nýjar og nýlegar bækur eins og grein Ernu Erlingsdóttur um hinn gífurlega vinsæla bókaflokk Hungurleikana og gagnrýni Hjörvars Péturssonar um glænýja bók Þórdísar Gísladóttur, Randalín og Mundi. Í blaðinu er einnig að … Lesa meira
You must be logged in to post a comment.