Pissupása á degi barnabókar

ævar

Fimmtudaginn 5. apríl 2018 verður smásaga eftir Ævar Þór Benediktsson frumflutt í öllum grunnskólum landsins kl. 9.10 til þess að halda upp á dag barnabókarinnar. IBBY á Íslandi hefur síðastliðin átta ár fagnað deginum með því að færa grunnskólabörnum á Íslandi smásögu að gjöf. Sagan verður samtímis flutt á Rás 1 svo að öll þjóðin getur lagt við hlustir.

Ævar Þór skrifaði söguna Pissupásan fyrir börn á aldrinum 6-16 ára. Ævar hefur samið ellefu barnabækur sem hlotið hafa fjölda viðurkenninga auk þess sem hann hefur hlotið Eddu-verðlaunin fyrir þættina um Ævar vísindamann. Í mars 2016 hóf Ævar samstarf við UNICEF sem sérstakur talsmaður hreyfingarinnar.

Kennsluefni tengt sögunni verður aðgengilegt á https://123skoli.is/ endurgjaldslaust.

Hér geta kennarar fundið nánari upplýsingar varðandi söguna og námsefni.

Dagur barnabókarinnar er 2. apríl. sem er fæðingardagur H.C. Andersen. Þar sem daginn ber í ár upp á annan í páskum er sögustundin á fimmtudagsmorgni, 5. apríl.