Frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti Þórarni Eldjárn í dag bókmenntaverðlaun IBBY á Íslandi, Sögustein. Verðlaunin eru 500.000 krónur, auk verðlaunagrips til eignar, en þau eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenskar barnabókmenntir. Var það einróma álit valnefndar, sem skipuð var Brynju Baldursdóttur, íslenskufræðingi og kennara, Dagnýju Kristjánsdóttur, prófessor og Ragnheiði … Lesa meira
Sögustund á landsvísu
Fimmtudaginn 4. apríl næstkomandi býður IBBY á Íslandi til stærstu sögustundar á landinu, þriðja árið í röð. Tilefnið er alþjóðadagur barnabókarinnar sem er 2. apríl ár hvert. Félagið hefur í ár fengið Friðrik Erlingsson til þess að semja smásögu ætlaða nemendum á öllum stigum grunnskólans, 6-16 ára. 40.000 grunnskólanemar munu hlusta á frumflutning sögunnar Stóra … Lesa meira
Framtíðarbókin í Gerðubergi
Laugardaginn 9. mars kl. 10.30 – 13.30 er hin árlega barna- og unglingabókaráðstefna í Gerðubergi. Umræðuefnið er Framtíðarbókin og rætt verður um það hvernig hvernig bækur og lestur þróast í samtíma okkar og framtíð. Aðgangur er ókeypis.
You must be logged in to post a comment.